fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir ágætisframsögu en þó fyrst og fremst fyrir gott samstarf í nefndinni. Það skiptir máli að það sé lipurlega haldið utan um forystu í nefnd eins og hv. fjárlaganefnd og það hefur verið gert af hv. þingmanni. Þegar við skoðum hins vegar fjárlagafrumvarpið bæði fyrir og eftir breytingar en sérstaklega eftir breytingar þá áttum við okkur á því að við erum að tala um allt aðra hluti heldur en ríkisstjórnarflokkarnir töluðu um fyrir kosningar. Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig hann útskýrir þennan viðsnúning, sérstaklega þegar kemur að skattamálunum, því nú liggur það fyrir að við erum að sjá mjög mikla aukningu ríkisútgjalda og áberandi mikla hækkun skatta. Ég er ekki sammála hv. þingmanni þegar hann gerir lítið úr skattahækkun í erfðafjárskattinum sem allir umsagnaraðilar benda á að er skattahækkun af því að menn eru að hækka andlagið. Við erum sömuleiðis að sjá eitthvað sem ég held að allir flokkar hafi lofað að gera ekki, þ.e. hækkun skatta á almenning, t.d. með samsköttuninni. Við sjáum vörugjöldin sem er einstaklega klaufaleg aðgerð og mun ekki skila því sem lagt er upp með. Hvað segir hv. þingmaður við kjósendur sína því ég veit að hv. þingmaður sagði það alveg skýrt eins og aðrir stjórnarþingmenn að þeir ætluðu ekki að hækka skatta á almenning?