157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans spurningu. Ef við ræðum bæði breytingar á vörugjöldum eða kannski förum sérstaklega yfir kílómetragjaldið, þá er það miklu stærra mál sem snýr að fjármögnun vegakerfisins til framtíðar, allri þjónustu, hvort sem það er löggæsla, sjúkraflutningar eða uppbygging innviða. Þetta veit hv. þingmaður og er miklu stærra mál sem á sér lengri sögu.

Varðandi erfðafjárskattinn þá liggur fyrir að árið 2021 þá skilaði bæði arfur og fyrirframgreiddur arfur 8,3 milljörðum, 11,3 árið 2022, 12,6 árið 2023 og síðan í fyrra 14,6 milljörðum. Fjármálaráðuneytið hefur gert ágætisgrein fyrir því og ef ég man tölurnar rétt þá var gert ráð fyrir 11,9 milljarða heimtum á þessum flokki í fjárlögum en endurmetið nú til jafns við það sem hefur komið í ljós fyrir þetta yfirstandandi ár. Ég tel að þau rök standist en tel þetta ekki vera skattahækkun.