157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:25]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið þótt lítið hafi verið um svör. Bara svo að allir séu með það á hreinu ætla ég að lesa beint úr umsögninni frá Deloitte Legal, orðrétt ef einhver skyldi velkjast í vafa um hvað sérfræðingarnir sem þekkja þetta best segja, með leyfi forseta:

„Fyrirhugaðar breytingar samkvæmt b-lið 11. gr. frumvarpsins um mat á löndum og jörðum til „markaðsverðs“ geta falið í sér verulega hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bænda, án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé til staðar til að greiða skattinn.“

Síðan er haldið áfram, virðulegi forseti. Aftur vitna ég beint í umsögnina. „Breytingarnar fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti.“ Ég skil ekki af hverju menn eru í fullri alvöru að segja að þessi hækkun og aðrar hækkanir, hvort sem það eru krónutöluhækkanirnar, samsköttunin eða skattarnir á leigunni, séu ekki skattahækkanir. (Forseti hringir.) Ætla menn í alvöru að reyna að fara út kjörtímabilið og segja að þetta séu ekki skattahækkanir? (Forseti hringir.) Ég spyr hv. þingmann: Hvernig útskýrir hann fyrir sínum kjósendum að það sé verið að hækka skatta (Forseti hringir.) þegar allir ríkisstjórnarflokkarnir sögðu fyrir kosningar að það ætti alls ekki að gera það?