fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka þingmanni fyrir síðari spurningu. Þegar fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins komu fyrir nefndina þá var það alveg skýrt að þetta var endurmat á þessum tekjulið og ekkert rætt um mögulegar breytingar sem liggja nú fyrir efnahags- og viðskiptanefnd og ekki minnst á að þær hefðu einhver áhrif þar um. Í minnisblaði sem öll nefndin fékk þá er skýrt tekið fram að þetta er endurmat á ætluðum tekjum af þessum tekjulið fyrir árið 2026 en ekki einhverjum breytingum sem liggja fyrir efnahags- og viðskiptanefnd sem komu, að ég best veit, eftir ábendingar Skattsins og liggja nú til umræðu þar. Auðvitað á efnahags- og viðskiptanefnd eftir að ræða þá hluti og mun örugglega komast að skynsamlegri niðurstöðu en það er ekkert í þeim gögnum sem við höfum fengið í þessu sem gefa til kynna að þessar breytingar séu þar undir.