157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni fyrir afbragðsgóða yfirferð og gott samstarf í nefndinni og fyrir góða fundarstjórn, ég held að það sé ekki of oft sagt, og ég þakka nefndarmönnum öllum fyrir samstarfið í nefndinni. Það hefur gengið afskaplega vel þótt við séum ekki alveg sammála um niðurstöðu. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir varðandi vörugjöldin — við höfum fengið inn í efnahags- og viðskiptanefnd fulltrúa frá bílaleigum, ekki einni og ekki tveimur, sem segja okkur allir sömu söguna, að von sé á stórum förmum hér af bílum fyrir áramót sem ekki verði keyptir eftir áramót; bílasalar hafa sömuleiðis sagt að það sé mikill hugur í fólki að kaupa bíla fyrir áramót og kauphegðun geti breyst í kjölfar þessarar skattlagningar — (Forseti hringir.) spyr ég hv. formann fjárlaganefndar hvort það sé ekki algjört ofmat að ætla að allar þessar breytingar muni ekki hafa nein áhrif á vörugjöld á árinu 2026 og hvort ekki hefði verið eðlilegra að fá endurútreikning hjá fjármálaráðuneytinu á þessum tölum.