157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:30]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi mat á upphæðum sem vörugjöldin eiga að skila, þá er hægt að færa fyrir því góð og gild rök að þessi tekjustofn verði ekki jafnhár og hann er. Fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneyti hafa komið bæði fyrir efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd og verið þráspurðir út í þetta atriði og það virðist vera mat ráðuneytisins, þrátt fyrir þær ábendingar, að vörugjöldin eigi að skila þessum upphæðum. Ég get svo sem ekki lagt eitthvert sérstakt mat á það sjálfur hvort þau muni skila 7,5 milljörðum. Þetta er auðvitað lág upphæð í heildarsamhengi fjárlaga eða tekna, eitthvað um 0,05%. Að sama skapi er erfitt að gera sér grein fyrir hverju aðrir stærri liðir skila. (Forseti hringir.) En eitt er víst, að því er ég held, að enginn mun verða nákvæmlega eins og fyrir er spáð. (Forseti hringir.) Ég tek kannski annan snúning á þessu á eftir.