157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína síðari spurningu. Svarið er í sjálfu sér einfalt: Við erum nálægt núllinu en réttum megin við það svo nemur einhverjum tugum milljóna. Réttum megin samkvæmt úttekt bæði okkar ágæta starfsfólks nefndarinnar og sömuleiðis fjármálaráðuneytisins. Við eigum því ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því. Stöðugleikareglunni var auðvitað ætlað að virka þannig að ef einhverjar breytingar verða á hvort sem er útgjöldum eða tekjum þá þarf auðvitað að færa til. Til þess er reglan og ég held að í vinnu nefndarinnar hafi komið vel í ljós hvað þessi regla er farin að virka vel þar sem töluvert hefur verið um tilfærslur til að gera breytingar.