157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:34]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. framsögumanni fjárlaganefndar fyrir kynningu sína á frumvarpinu. Frumvarpið ber með sér að skattbyrði verði aukin, samkvæmt þessu frumvarpi og samkvæmt öðrum frumvörpum, um meira en 25 milljarða. Þar er fyrst að nefna 3,3 milljarða kílómetragjald, 7,5 milljarða vörugjald á bifreiðar, 7,6 milljarða veiðigjald, sem er reyndar eldri löggjöf, afnám nýtingar skattþrepa á milli hjóna nemur 2,8 milljörðum, fjármagnstekjuskattur af leigutekjum 1,6 milljörðum og afnot persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts 700 milljónum. Við bætist jöfnunargjald raforku upp á 1,9 milljarða að ógleymdum erfðafjárskatti sem gert er ráð fyrir að hækki um 2,1 milljarð en er útskýrt, frú forseti, á þann hátt að þarna sé um einhvers konar misreikning að ræða og menn skoði það betur.

Í frumvarpi sem liggur fyrir efnahags- og viðskiptanefnd liggja hreinlega fyrir, samkvæmt áliti umsagnaraðila, skattahækkanir (Forseti hringir.) í erfðafjárskatti vegna mats á jörðum og löndum og hlutabréfum og fleiru slíku (Forseti hringir.) sem gæti skýrt þessa upphæð, 2,1 milljarður. Þá erum við komin út í það og ég spyr hv. formann að því hvort hann telji að þessar skattahækkanir (Forseti hringir.) muni ekki breyta hegðun skattteknanna.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin en ræðutími er eingöngu ein mínúta að þessu sinni þar sem fjórir þingmenn eru í andsvörum.)