157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hafa þessar breytingar áhrif á hegðun? Það er mjög matskennt. Það er auðvitað verið að gera breytingar í efnahags- og viðskiptanefnd sem snúa að lækkun innviðagjalds, m.a. á skemmtiferðaskip, þar sem hefur verið þrýst mjög á að breyta því gjaldi vegna afbókana skemmtiferðaskipa. Þótt það sé mat umsagnaraðila hjá efnahags- og viðskiptanefnd að breytingar á lögum um erfðafjárskatt skuli fara eftir markaðsvirði, finnst mér mikilvægt að segja að auðvitað á að meta eignir að teknu tilliti til markaðsvirðis. Hins vegar ber að hafa í huga að auðvitað getur verið, eins og varðandi bújarðir, nýliðun og fleira, tilefni til að gera breytingar og/eða undanþágu þar á. Það er í meðferð hjá nefndinni. Ég held áfram í síðara andsvari.