157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:37]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er alkunn staðreynd að skattgreiðendur eru ekki óþrjótandi auðlind. Það er ekki hægt að seilast ofan í vasa skattgreiðenda út í hið óendanlega. Þeir breyta að sjálfsögðu sinni hegðun. Ef þú fiskar í lítilli tjörn fiska og fiskar svo meira í lítilli tjörn þá endar það með því að þú getur ekki fiskað meira því fiskurinn er búinn. Skattgreiðendur breyta því að sjálfsögðu sinni hegðun. Gerir ríkisstjórnin og frumvarpið ráð fyrir því að það verði engar breytingar á hegðun skattgreiðenda, til að mynda, eins og hv. þingmenn hafa lýst hér varðandi vörugjöld á bifreiðar, að þetta breyti engu, menn haldi bara áfram að borga þetta? Breyta þeir ekki hegðun sinni? Kaupa þeir ekki bíl núna frekar en síðar? Keyra menn ekki aðeins minna þegar kílómetragjaldið verður komið á? Munu ferðamennirnir ekki aka aðeins minna, taka styttri leiðir? Mun ekki notkun ferðamanna á bílum jafnvel minnka þannig að skatttekjurnar dragist saman, kannski ekki frá upphaflegu upphæðinni en dragast þó saman miðað við þær áætlanir sem gerðar eru?

Ég vil aðeins ljúka þessu, þetta er svo stuttur tími, frú forseti, en ég hjó eftir því að hv. þingmaður talaði um að hækkun á kílómetragjaldinu væri auðvitað hugsuð til viðhalds vegakerfisins. (Forseti hringir.) Er það ekki rétt, hv. þingmaður, að bifreiðaeigendur eru að greiða 78 milljarða vegna notkunar á bifreiðum sínum en að einungis tæpir (Forseti hringir.) 50 milljarðar renna til viðhalds vegakerfisins?