fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt síðara andsvar. Varðandi veiðigjöldin, þá er það alveg ljóst og mat held ég allrar þjóðarinnar, með einhverjum örfáum undantekningum, að það hafi svo sannarlega verið svigrúm fyrir stórútgerðarfyrirtækin að greiða meira til baka og eingöngu að taka tillit til markaðsverðs þeirra afurða sem reiknað er eftir. Varðandi kílómetragjaldið, þá þekkir hv. þingmaður, sem hefur setið töluvert lengur á þingi heldur en ég, þá sögu þegar verið er að reyna að koma á gjaldtöku til að styðja við uppbyggingu í vegakerfinu og allri þeirri þjónustu sem þar er í kring. Þó að það séu bara 50 milljarðar sem fara í vegakerfið fara örugglega hærri upphæðir í þjónustu, heilbrigðiskerfið og ýmislegt annað í kringum þjónustu við vegakerfið, og aksturinn sem er þar undir líka og þarf að telja upp. Það hefur verið stefna bæði fyrri ríkisstjórnar og þessarar að ná þessu hlutfalli upp (Forseti hringir.) í sama hlutfall af landsframleiðslu og var hér fyrir nokkrum árum.