157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka formanni fjárlaganefndar, Ragnari Þór Ingólfssyni, fyrir gott samstarf þetta haustið við vinnu við fjárlagafrumvarpið. Mig langar rétt að koma inn á og ítreka það hversu miklar áhyggjur sá sem hér stendur hefur af ættliðaskiptum í landbúnaði miðað við þær hugmyndir sem nú er verið að ræða um erfðafjárskattinn og hvernig þetta virðist vera að þróast. Það er ljóst að þetta hefur gríðarlega slæm áhrif á ættliðaskipti í sveitum landsins og langaði mig rétt að koma að því.

Ég er ánægður með flugþróunarsjóðinn, að það komi 100 milljónir vegna flugsins á Akureyri og Egilsstöðum. Mig langaði þó rétt að koma inn á endurhæfingarstofnanirnar. Það er kannski ekki mjög ljóst — hér er talað um 700 milljónir til Ljóssins, NLFÍ og Reykjalundar. Hvenær fá viðkomandi aðilar að vita eða getur hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson sagt okkur hvaða upphæðum er reiknað með? Hvernig verður forskriftin gefin gagnvart kerfinu af framkvæmdastjórninni í landinu um það hvernig peningarnir munu dreifast? (Forseti hringir.) Ég hef áhyggjur af því að þessu ferli geti seinkað. Getur hv. þingmaður sagt okkur hvenær von er á að Ljósið fái upplýsingar um hver upphæðin verður til þeirra?