fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég deili vissulega áhyggjum af bújörðum og treysti því að efnahags- og viðskiptanefnd taki sérstaklega tillit til ábendingar hv. þingmanns og áhyggna okkar flestra held ég. Varðandi skiptingu á styrkjum þá var hluti af þessu vinnulagi sem nefndin setti sér að í staðinn fyrir að úthluta föstum fjárhæðum til einstakra aðila voru fengnar umsagnir ráðuneytanna um hvert mat þeirra væri á fjárþörf þessara félagasamtaka og stofnana. Það er auðvitað mjög mikilvægt af því að það er erfitt fyrir fjárlaganefnd að gera áætlun upp á punkt og prik um fjárhæðir til einstakra aðila. Reiknað saman þá tel ég að þessir fjármunir verði til þess að viðkomandi félög geti veitt óskerta og óbreytta þjónustu.