157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:44]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Meiri hluti fjárlaganefndar gefur ekki þau skilaboð frá sér hvernig eigi að verja fjármagninu til aðila, þessum 700 milljónum, sem dæmi. Því er í raun verið að færa það meira frá löggjafarvaldinu yfir til framkvæmdarvaldsins hvernig þetta verður tekið fyrir. Það er engin nóta gefin út um hvernig eigi að skipta fjármagni á milli aðila sem skapar áframhaldandi óvissu. Það er nú bara þannig að við erum að ræða fjárlög og rekstur þessara stofnana, félaga og hvað það er árið 2026. Við klárum kannski um miðjan desember og þá eru 15 dagar til áramóta. Sá sem hér stendur hefur áhyggjur af því, þótt ekki væri nema vegna rekstrarleyfisþáttarins, að seinka ferlinu. Hvenær kemur þá ákvörðunin frá ráðherra viðkomandi málaflokks um hvernig eigi að standa að því? Það er þetta sem ég hef áhyggjur af. Svo þetta eina mál sé tekið fyrir sem snýr t.d. að Ljósinu þá hefur verið mikil óvissa uppi um hvernig framhaldið verður, ef hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson (Forseti hringir.) gæti komið inn á það hvernig þetta verður unnið á næstu vikum í framhaldinu.