157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Í nefndarálitinu er tekið fram að við teljum að þessar upphæðir muni standa undir óbreyttri og áframhaldandi þjónustu þessara mikilvægu samtaka. Þetta breytta verklag varðar það að þessu sé komið í betri farveg, að það sé ekki á herðum nefndarmanna í fjárlaganefnd að taka ákvörðun um hvað þessi fær mikið og hinn og taka síðan ákvörðun eftir, hvað eigum við að segja, óljósu mati um hver raunveruleg fjárþörf er til einstakra verkefna. Þess vegna er mikilvægt að þetta sé gert faglega og gert, eins og við köllum eftir, með samningum, eins og með meðferðarúrræðin, mögulega með aðkomu Sjúkratrygginga; að gerðir verði samningar um þessar fjárveitingar. Auðvitað er markmiðið að þeir verði til lengri tíma og varanlegir en ekki að lenda í sömu sporunum ár eftir ár, að það sé á herðum nefndarmanna fjárlaganefndar að meta hver hin raunverulega fjárþörf er. Ég þakka þessa spurningu og ábendingu og mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því að gengið verði frá þessum samningum eins fljótt og auðið er til að eyða óvissu (Forseti hringir.) hjá þessum mikilvægu endurhæfingarúrræðum.