157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans ræðu. Í ræðunni varð hv. þingmanni tíðrætt um endurmat ríkisútgjalda og markmiðasetningu. Ég vil gleðja hv. þingmann með því að þessum áhuga deilum við. Sú vinna að hefja endurmat útgjaldaliða er þegar komin í gang og ég hlakka til samvinnu við Alþingi um þetta verkefni.

Ég hjó eftir einu og öðru í hans ræðu en það sem mig langaði þó sérstaklega til að fá skýrt fram er tónn varfærni sem fram kom í máli hv. þingmanns í tengslum við að nefna ítrekað bæði fjármálastefnu og -áætlun. Ég túlkaði það sem ákall um minna aðhald. Mig langaði til að spyrja þingmanninn hvort hann teldi að aðhald ríkisfjármála væri of mikið um þessar mundir eða hvort ég hafi misskilið hans orð.