fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er ánægjulegt og ég hlakka til að fá þetta verkefni væntanlega í fjárlaganefnd varðandi endurmat ríkisútgjalda. Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt og þetta var komið aðeins af stað hér í tengslum við síðustu fjárlög en því miður fór það nú á annan veg en menn ætluðu, endirinn á því þingi. Ég fagna því að hæstv. ráðherra deili áhuga mínum að fara í þessa vinnu og ég hlakka til að koma inn í hana.
Varðandi varfærnina: Já, ég held að hæstv. ráðherra hafi misskilið mig. Ég er ekki að tala um að við eigum að eyða meira. Ég held að það vanti aðhald í þessa áætlun og á það hef ég bent; ég benti á það í 1. umræðu og hélt að ég hefði gert það skýrt hér í þessari umræðu. Varðandi orðið varfærni (Forseti hringir.) þá erum við líka að tengja það varasjóðnum sem er nú kominn niður í 1% miðað við alla þá óvissu sem er uppi í samfélaginu, bæði innan lands og utan, það er búið að taka varasjóðinn (Forseti hringir.) af öllum ráðuneytum. Það er sú varfærni sem ég er að tala um í mínu nefndaráliti, virðulegi forseti.