157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:52]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir svarið og er hér með leiðréttur í þeim misskilningi mínum að telja að hann kalli eftir minna aðhaldi. Ég vil þó gleðja hv. þingmann með því að aðhald þeirra fjárlaga sem til umræðu eru hér er u.þ.b. það sama og síðustu fjárlaga. Það er alltaf erfitt að stýra hagkerfi í gegnum ríkisfjármál vegna þess að áhrif ríkisfjármálanna eru lengi að koma fram og það er verið að reyna að giska á stöðu sem enginn okkar veit nákvæmlega hver verður einhvern tímann á miðju næsta ári. Í fljótu bragði fæ ég ekki séð að við séum þarna stórfenglega ósammála en það væri áhugavert að heyra skoðun þingmannsins á því.