157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:53]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir síðara andsvarið. Ef ég man tölurnar rétt þá held ég að aðhaldsstigið í þessum fjárlögum sé 0,2% en var 0,3% í síðustu fjárlögum. Þau voru metin hlutlaus og þá geta menn séð hvað 0,2% er. Það er þá alla vega ekki meira. Það er ljóst að aðhaldið er af skornum skammti í þessu frumvarpi.

En hver var spurningin? Ég er búinn að tala svo lengi hér … (Fjármrh.: Hvort þú teldir aðhaldið ónákvæmt í ljósi þess að það er í samræmi við …) Já, ég held að menn hefðu átt að stíga fastar til jarðar varðandi varfærnina og hafa hér meira aðhald. Mér finnst útgjaldaaukning upp á 143 milljarða ansi vel í lagt, virðulegur forseti.