157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:54]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir hans framsögu varðandi nefndarálit 1. minni hluta. Talandi um skýrleika þá fengum við þetta nefndarálit bara fyrir nokkrum klukkustundum síðan og maður hefur verið að reyna að koma sér í gegnum þetta. Þetta er mjög ítarlegt og gott. Ég er bara að velta fyrir mér hvernig maður getur lesið betur út úr þessu. Fyrst vil ég nefna kaflann um þessa 3 milljarða í aðhald og sparnað, hvernig ber að skilja það eða sem sagt sundurliða það? Ég er bara að reyna að fá nánari skýringar á þessum 2% flata niðurskurði sem um er að ræða vegna þess að ég er að reyna að lesa saman breytingartillöguna og textann. Ég get ekki fengið það til að ganga upp nema ég sé að lesa þetta rangt. Ég ætla að byrja á þessari fyrirspurn.