157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:55]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og er ánægður að heyra að hv. þingmaður ætli að kafa ofan í nefndarálitið enda er það mjög ítarlegt og þar er nóg af efni að finna. Það er alveg rétt, þetta er eitt af því sem við vorum að gagnrýna og sem við þurfum, held ég, að skoða, þ.e. sá tími sem líður frá því að við fáum nefndarálitið þar til umræðan fer af stað. Nú er ég ekki að reyna að vera í einhverjum pólitískum hártogunum. Ég er einfaldlega að benda á þessa staðreynd. Við erum að reyna að bregðast við nefndaráliti meiri hlutans sem við fengum í gær klukkan fjögur og eigum að gera það með nefndaráliti minni hluta og meiri hlutinn er að fá nefndarálit okkar fimm mínútum fyrir umræðuna. Auðvitað er þetta ekki nógu gott. En aðhaldskrafan, þessi upphæð sem þar er nefnd, er aukning úr 1% í 2%.