157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:57]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Það sem ég hef áhyggjur af eru tillögur um flatan niðurskurð, hafandi reynslu af slíku í fjárlagagerð, að það skili sér mjög illa og að betra sé að vinna það niður á sérstaka fjárlagaliði. Seinni spurning mín varðar þá í raun lið 22.10, sem mig minnir að hafi verið um skólamál. Þar er talað um 486 milljóna aukningu. Mig langar að fá aðeins betri skýringar á þessari nákvæmu tölu sem þarna er. Síðan er að lokum ein spurning til viðbótar, einmitt varðandi vörugjöldin og það sem fram kom í máli hv. þingmanns: Hvaða skoðun hefur hann á því að leggja 1,7% af vergri landsframleiðslu til vegagerðar?