fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessar spurningar hans í síðara andsvari. Það er náttúrlega algerlega ómögulegt að svara þeim öllum á þeim 47 sekúndum sem ég á eftir. Ég skal gera mitt besta. Það er flatur niðurskurður upp á 1% í frumvarpinu eins og það kemur fyrir nú. Það sem við erum bara að segja er að við erum að hækka hann upp í 2%. Þeim sem hér stendur, og ég trúi ekki öðru en að hv. þm. Viðreisnar sé svolítið á sömu slóðum og sá sem hér stendur, finnst 146 milljarða kr. aukning í fjárlagafrumvarpi ansi vel í lagt. Því held ég að það sé alveg hægt að fara í þetta 1% aukalega til að ná fram betri hagræðingu í ríkisrekstrinum. Hvað vörugjöldin varðar hef ég áhyggjur af þeim og það er eiginlega ógerningur fyrir mig að svara þessu. Þetta snýst alltaf um útfærslu vörugjaldanna. Hvernig á að fara að því að setja auknar álögur á umferð? Það snýst um (Forseti hringir.) hvernig það er gert. Ég held að við séum öll sammála hér inni að við þurfum að setja auknar álögur á umferð og að fyrir umferð þarf að borga. Spurningin snýst um hvernig við gerum það og hvernig við útfærum það. Um það erum við ósammála.