157. löggjafarþing — 39. fundur, 2. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ræðu sína og mjög metnaðarfulla umsögn 1. minni hluta og fjölmargar tillögur. Fyrri spurning mín snýr að því að ef ég les rétt úr minnihlutaálitinu þá felast ekki í tillögunum sérstakar hagræðingaraðgerðir heldur útgjaldaaukning og síðan aukin aðhaldskrafa til að mæta henni. Í ljósi gagnrýni, bæði í ræðum og riti, á aukið aðhald, hefði ekki farið betur á því að koma með raunverulegar tillögur um frekara aðhald til lækkunar?