157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:00]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar kærlega fyrir andsvarið. Í okkar ágæta nefndaráliti vorum við einmitt að reyna að ná þeirri leikni að geta aukið útgjöld en skorið niður á móti. Tillögurnar ganga út á það að við náum 4–4,5 milljörðum úr aðhaldsaðgerðum á móti þeim útgjöldum sem við færum í og leggjum til í þessum tillögum. Þær eru frekar til lækkunar en hækkunar.