fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir svarið. Seinni spurningin snýr að samanburði milli fjárlaga. Ljóst er að fjárlög fyrir árið 2025 voru upphaflega um 1.489 milljarðar en standa í 1.629 milljörðum í dag fyrir árið 2026. Ég vildi spyrja hv. þingmann að því hvort hann telji þetta vera sanngjarnan samanburð hvað varðar útgjaldaaukningu í ljósi þess að nú hafa verið töluverðar uppfærslur á heildarútgjöldum ársins 2025, sömuleiðis varðandi fleiri þætti eins og raunvirðisaukningu bæði bóta og launa, vísitöluhækkanir. Telur hann þetta vera sanngjarnan samanburð í ljósi þessa? Nú síðast var t.d. búið að endurmeta heildargjöld fyrir fjárlög þessa árs upp í 1.531 milljarð og (Forseti hringir.) ekki var búið að taka tillit til varasjóðs í þeim efnum.