fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirtaks fyrirspurn. Ég held að það sé alveg rétt sem hv. þingmaður segir, það er ýmislegt hér sem er lagt til sem mun hjálpa landsbyggðinni. En það breytir ekki því sem ég taldi upp áðan. Það breytir ekki þeirri tilfinningu minni og margra annarra að hér sé verið að stíga ansi fast niður gagnvart landsbyggðinni. Ég held að við sjáum bara hluti með sitthvorum gleraugunum, ég og hv. þingmaður, þegar kemur að mörgu, m.a. þessu.
Varðandi sóknaráætlanir þá er það rétt að þær eru hækkaðar. En menn verða að hafa það í huga að á móti kemur að fjárlaganefnd er ekki að setja fjárveitingu til þeirra styrkbeiðna sem við höfum verið að gera og færir þær (Forseti hringir.) yfir til sóknaráætlunarinnar. Ég hef ekki nákvæma tölu hvort þær umsóknir sem nefndin neitaði núna falla innan þeirra 270 millj. kr. sem koma aukalega í sóknaráætlun, en við skulum vona það.