157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir; það er verið að hækka sóknaráætlanirnar upp í 400 millj. kr, um 270 millj. kr. Það er verið að breyta verklagi og ég held að ég hafi sagt það í fjárlaganefnd að ég er algerlega hlynntur því í eðli sínu. En það þarf þá að tryggja — og menn þurfa að gera sér grein fyrir því að það sem er verið að gera með þessari eflingu sóknaráætlunar er að það er verið að færa fjármagn eða styrkveitingu sem hefur verið inni í fjárlaganefnd yfir í sóknaráætlun. Þau fjölmörgu verkefni sem hafa fengið styrk í gegnum fjárlaganefnd á undanförnum árum fá það ekki núna og þurfa þá að sækja í sóknaráætlun. Ég hef áhyggjur af því að það fjármagn sé ekki nægt. En ég er hlynntur hugmyndafræðinni og ég held að hún muni reynast okkur betur til langframa. En það verður að tryggja að það sé til fjármagn fyrir því.