157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:11]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta er mikilvæg umræða sem við ræðum hér en það hefur náttúrlega komið fram að það er mjög óheppilegt fyrir umræðuna um þetta mikilvæga mál, sem er hvorki meira né minna en fjárlögin, hvað hlutirnir koma seint fram. Við erum að fara í þessa umræðu mjög seint. Eins og fram hefur komið er það hlutverk minni hlutans að svara nefndaráliti meiri hlutans og koma með sína sýn almennt á málið, en það hefur hins vegar komið mjög seint. Við ákváðum því að leggja ekki mikla áherslu á formið en rétt er að minnast á þetta hér vegna þess að það er ekki gott og hjálpar okkur ekki í þessu mikilvæga verkefni sem við erum að fást við.

Það hefur legið fyrir nokkuð lengi og kemur skýrar og skýrar fram að það sem stjórnarflokkarnir lögðu áherslu á og lofuðu fyrir kosningar er svikið í þessum fjárlögum. Það fer ekkert á milli mála, virðulegi forseti. Það nýjasta sem kom fram og hefur verið í umræðunni er hækkun á erfðafjárskatti. Það var áhugavert að í andsvörum fyrr í dag kom það mjög skýrt fram hjá hv. formanni fjárlaganefndar, og gat ekki verið neitt skýrara, að þegar þessi breyting sem vakti athygli var rædd í fjárlaganefnd þá hækkuðu á milli umræðna tekjur ríkisins af erfðafjárskatti um 2,1 milljarð. Nú er þetta ekki stór skattstofn og hefur ekki verið það fram til þessa þannig að hækkunin þarna var umtalsverð. Eðlilega var spurt um hvernig þetta mætti vera og svörin eru m.a. til skrifuð. Þau voru í besta falli rýr en það kom alveg fram, sem er auðvitað vitað og hv. formaður fjárlaganefndar var mjög skýr á því, að ekki var minnst á það að komið væri frumvarp frá ríkisstjórninni inn í efnahags- og viðskiptanefnd sem miðaði að því að hækka andlag erfðafjárskatts. Ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, að mér finnst það vera mikil ósvífni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, að halda einhverju öðru fram.

Nú eru margar leiðir til þess að hækka skatta. Ef menn segja að það sé bara skattahækkun að hækka skattprósentuna þá geta menn hugsanlega sloppið með endalaust af skattahækkunum. Hér er ekki um það að ræða heldur er verið að hækka andlag þess sem skatturinn er reiknaður af. Í þeim löndum sem við berum okkur saman við er það stóralvarlegt mál. Við þekkjum t.d. umræðuna í Bretlandi en þar eru stjórnvöld, bæði fjármálaráðherra og forsætisráðherra, í kröppum dansi vegna þess að það var talið að þeir hefðu ekki sagt almenningi og þingi rétt frá því sem var í fjárlagafrumvarpinu. Mér finnst með ólíkindum að heyra svör hæstv. ráðherra og fleiri stjórnarliða þegar kemur að þessu máli. Ef einhver segir að hér sé bara pólitík á ferð, hér sé stjórnarandstæðingur að tala, þá vil ég, með leyfi forseta, lesa upp úr umsögn eins af umsagnaraðilum. Þessi umsögn er ekki einsdæmi — ég er nú ekki í þessari hv. nefnd — en umsagnaraðilinn heitir því enska nafni Deloitte Legal og hefur starfað í landinu um áratugaskeið og er lögfræðideild eins stærsta endurskoðunarfyrirtækis Íslendinga. Þar segir, með leyfi forseta, á fyrstu síðu:

„Samantekt: Fyrirhugaðar breytingar skv. b-lið 11. gr. frumvarpsins um mat á löndum og jörðum til „markaðsverðs“ geta falið í sér verulega hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bænda, án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé til staðar til að greiða skattinn.

Fyrirhugaðar breytingar skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins um hækkun á skattstofni óskráðra félaga fela í sér gróft frávik frá almennum meginreglum skatta- og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.

Breytingarnar fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti.“

Hér segir það skýrt, virðulegi forseti. Svo ég vitni beint í þetta:

„Breytingarnar fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti.

Breytingarnar gætu skapað talsverða óvissu um skattalega meðferð vegna annarra skatta þar sem byggt hefur verið á sömu meginreglu.

Tillagan er gölluð að því leyti að ekki er tekið tillit til tekjuskattsskuldbindinga sem hvíla á sjálfum félögunum.

Tillagan mun leiða til óskýrleika í framkvæmd því nú er lagt í hendur sýslumanns og skattyfirvalda að meta hvenær um sé að ræða „óverulegan“ mismun á bókfærðum verðmætum samkvæmt ársreikningum og markaðsvirði eigna.

Líkur eru á að sama eign yrði tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eignar vegna arftöku.

Líkur eru á að erfingjar þurfi að leggja út í kostnað við öflun verðmats eða sérfræðiaðstoðar til að verðmeta óskráð félög.

Allar líkur eru á því að erfingjar þar sem arfláti var minnihlutahluthafi fái ekki nauðsynlegan aðgang að bókhaldi eða eignum viðkomandi félaga til að láta verðmeta eignir þess.

Samhliða innleiðingu 12. gr. frumvarpsins um tímamörk endurákvörðunar Skattsins ætti að taka til sérstakrar skoðunar að innleiða þröngar undanþágureglur í erfðafjárskattslögin til að bregðast við tilvikum þar sem matsviðmið laganna leiða til óeðlilegrar niðurstöðu.“

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lesa alla þessa umsögn. Hún er mjög góð, mjög ítarleg og hér er farið yfir það að nú á að setja í lög, ef frumvarp hæstv. ríkisstjórnar nær fram að ganga, túlkun Skattsins sem varð undir fyrir yfirskattanefnd í deilum við aðila sem Skatturinn taldi að greiddu ekki nógu háan skatt. Það er algjörlega skýrt að þetta frumvarp er komið fram til að hækka erfðafjárskattinn. Það verður ekki skýrara. Það er engin önnur ástæða fyrir því að þetta frumvarp er lagt fram. Það er grafalvarlegt mál ef stjórnvöld ætla að hækka skatta að þau segi ekki frá því. Nú heldur forysta ríkisstjórnarinnar því fram að hækkunin á milli umræðna á erfðafjárskatti um 2,1 milljarð tengist þessu ekki með neinum hætti, þ.e. þessu frumvarpi, heldur sé verið að nýta spálíkan, svo ég noti orðalagið, sem hefur alltaf verið notað til að meta þá upphæð sem skatturinn á að skila.

Virðulegur forseti. Þá liggur fyrir að spálíkanið var ekki notað þegar frumvarp til fjárlaga var samið. Allt í lagi, gefum okkur að það hafi verið yfirsjón, mikið að gera í ráðuneytinu eða eitthvað slíkt, að menn hafi gert mistök. Ég held að enginn trúi því að það hafi orðið miklar lýðfræðilegar breytingar frá september þar til í nóvember á Íslandi. Gefum okkur að það sé rétt að hér hafi orðið handvömm, sem menn hafa að vísu ekki sagt en það er eina skýringin ef skýring stjórnvalda á að halda, að þarna hafi verið um mikla handvömm að ræða í ráðuneytinu við framlagningu frumvarpsins. Þá stendur eftir: Hvar í áætlunum, hvar í frumvarpinu er gert ráð fyrir þeim auknu tekjum af erfðafjárskatti sem óhjákvæmilega munu koma fram ef þetta frumvarp er samþykkt? Hvar kemur það fram ef ekki í þessum 2,1 milljarði til hækkunar út af því að menn fóru að nota spálíkanið sem þeir gleymdu að nota? Við verðum, virðulegi forseti, að fá svör við því.

Síðan er það þannig að ríkisstjórnin getur ekki með neinum hætti haldið því fram að hún hafi gert eitthvað annað en að svíkja það loforð að hækka ekki skatta á almenning. Það er algerlega skýrt. Þá er ég ekki bara að tala um erfðafjárskattinn. Ég er líka að tala um að þær skattbreytingar sem farið verður í varðandi ökutækin eru auðvitað gríðarlega mikil hækkun. Við getum farið yfir það á eftir. Hækkun krónutölugjalds, sem er auðvitað skattur, er ekki eins og oft og mælt er með í samræmi við verðbólguspá Seðlabankans heldur er farið í sömu upphæð og verðbólgan er. Núverandi forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar, hafði uppi gríðarlega stór orð um það að bara það að hækka eitthvað þennan skatt væri bein árás, hvort það var ekki bara árás á íslenska alþýðu, en það var þegar forsætisráðherra var í stjórnarandstöðu.

Nú er það alveg rétt sem komið hefur fram, virðulegi forseti, að það að breyta um fyrirkomulag fjármögnunar og skattkerfisins á þessu sviði með kílómetragjaldið er ekki ný hugmynd en ástæðan fyrir því að fyrri stjórnvöld heyktust á því að gera það er sú að útfærslan skiptir gríðarlega miklu máli. Það skiptir máli að vanda til verka og í mínum huga er augljóst að þú vandar ekki til verka þegar að þessu kemur nema með því að vinna með þeim sem eru á vettvangi, sem eru á markaði og þekkja málið best. Það hefur ekki verið gert og reyndar er það svo að frumvarpið um tryggingagjaldið, ef ég man rétt, fór ekki í samráðsgátt og því síður í eitthvert eiginlegt samráð heldur á meiri hluti hv. efnahags- og viðskiptanefndar að flytja það frumvarp. Það voru allir algerlega meðvitaðir um að það að koma fram að hausti með þær fyrirætlanir að hækka skatta gríðarlega á ökutæki myndi þýða, sem er algerlega augljóst, að fyrirtæki og almenningur færu að hamstra bíla. Það gerðist auðvitað, virðulegi forseti. Hvað þýðir það? Nú veit ég ekki um þá hv. þingmenn sem hér sitja inni, þeir eru kannski annarrar gerðar, en ég held að það sé mjög almennt að fólk kaupi sér ekki nýjan bíl á hverju einasta ári. Ég held að það sé frekar almennt. Ekki það, þegar munar svona miklu eins og þegar kemur að bílaleigunum, eins og öðrum, þá hafa þær ekkert farið í felur með það að þær séu að kaupa sér eins mikið af bensín- og dísilbílum og þær mögulega geta fyrir áramót. Af hverju? Vegna þess að vörugjöldin eru miklu lægri á þessu ári. Hvað þýðir þetta, virðulegi forseti? Það þýðir að bílaleigurnar, sem kaupa helminginn af skráðum bílum, munu ekki kaupa bíla árið 2026 eða mjög lítið af þeim. Og hvaða áhrif hefur það, virðulegi forseti? Það hefur þau áhrif að tekjur sem menn ætluðu af eðlilegri bílasölu árið 2026 munu ekki skila sér. Það mun væntanlega þýða að tekjur af vörugjöldum á árinu 2025 verða hærri, en þær verða miklu lægri árið 2026. Er það ekki algjörlega augljóst? Er einhver að velkjast í vafa um þetta? Ég held ekki. Þá myndi einhver segja: Er þá ekki rétt að skoða þessar forsendur aftur? Tölurnar liggja fyrir og til að setja þetta í samhengi þá keyptu bílaleigurnar í nóvember 2025 535% fleiri bíla, bensín- og dísilbíla, en árið 2024–535% fleiri bensín- og dísilbíla. Hvað þýðir það? Auðvitað þýðir það líka að við erum að vinna gegn þeim markmiðum sem voru varðandi orkuskiptin og það að fara meira í rafmagn. Þetta var í nóvember. Þær að vísu tóku aðeins við sér í október, þá var þetta 163% meira, en desember er eftir og upplýst hefur verið fyrir hv. nefndum að stór skip séu á leiðinni með hundruð eða jafnvel þúsundir bíla vegna þess að allir eru að hamstra bíla fyrir áramót.

Hér ætluðu menn að ná 7,5 milljarða aukningu í vörugjöldum af bílum. Ég held að ef hæstv. ríkisstjórn ætlar að vera ábyrg í sinni fjárlagagerð þá sýni menn í það minnsta hvernig eigi að ná þessum 7,5 milljörðum. Virðulegi forseti, erum við ekki sammála því? Ég er búinn að tala við marga um þetta mál sem eru á vettvangi og hef ekki heyrt nein önnur sjónarmið en ef svo væri þá held ég að mikilvægt væri að fá það skriflegt frá fjármálaráðuneytinu hvernig menn ætla að ná þessum fjárhæðum, því það er ekkert í hagtölum sem bendir til þess að hér verði slíkt góðæri á næsta ári að fólk muni vera í biðröðum eftir að kaupa bíla í bílaumboðum. Engar slíkar tölur eru uppi. Þvert á móti er hagvöxtur að fara niður og verðbólgan að fara upp.

Virðulegur forseti. Við hljótum að fara fram á það að þessar forsendur verði útskýrðar af því að það lítur út fyrir að þær muni ekki ganga eftir. Menn ætla líka að gera annað — og aftur, kílómetragjaldið er ekkert nýtt. Búið er að ræða það í mörg ár og skoða það mjög vel en menn hafa verið að heykjast á því vegna þess að þegar kemur að framkvæmdinni finnst mönnum margar spurningar vera uppi. Þegar frumvarpið verður samþykkt eins og það liggur fyrir núna þýðir það — og við erum eina landið eftir því sem ég best veit sem hefur farið út í kílómetragjaldið — að verðið á litla Yarisnum, sem við myndum kannski leigja þegar við kæmum til landsins, hækkar út af kílómetragjaldinu um 30–35% að vetri og 10–15% að sumri. Kannski væri það allt í lagi ef við værum ein í heiminum, hér væri öll heimsbyggðin að bíða eftir því að koma til Íslands og það skipti engu máli hvað nokkur skapaður hlutur kostaði, það yrði borgað sem upp væri sett. Það er ekki svo, virðulegi forseti. Til eru fleiri falleg lönd en Ísland. Auðvitað finnst mér Ísland vera fallegasta land í heimi en ég er ekki alveg óvilhallur. Við erum að keppa t.d. við Noreg og Finnland. Þeir munu fagna því þegar samkeppnishæfni okkar og íslenskrar ferðaþjónustu veikist og reyna að nýta sér það. Á endanum eru allir eins og fólk horfir auðvitað á hvað það kostar að fara í viðkomandi frí, það er gömul saga og ný og eitthvað sem spilar inn í.

Virðulegi forseti. Við sjáum, þvert á það sem var lofað, að tekjuskattur einstaklinga hækkar. Rök ríkisstjórnarinnar eru að það séu helst hvítir, miðaldra karlmenn sem greiða þetta, sem eru í sambúð eða giftir. Það er útúrsnúningur og alveg furðulegur málflutningur í alla staði. Þetta er samsköttun hjóna. Hugsunin á bak við hana er að hjón og sambúðarfólk séu ein eining og ef launin lækka hjá öðrum lina menn höggið með því að hafa samsköttun. Þetta er skattahækkun á almenning í landinu og það veit enginn hvað verður á morgun. Stundum er annar aðilinn alltaf launalægri en ég held að flestir fari þannig í gegnum lífið að það gangi á ýmsu. Fáir eru í sömu tekjutíundinni frá fyrstu mínútu þar til þeir hætta á vinnumarkaði. Hér er verið að hækka skatta á almenning í landinu, þvert á það sem var lofað fyrir síðustu alþingiskosningar.

Hæstv. fjármálaráðherra sagði í fréttum að það væru engar skattahækkanir, eins og á bls. 121 þar sem eru 28 milljarðar. Síðan höfum við séð erfðafjárskattinn sem við getum ekki með neinum rökum haldið fram að sé annað en skattahækkun. Ég ætla ekki að lesa aftur niðurstöðu þeirrar umsagnar sem ég las frá Deloitte Legal eða annarra umsagna. Eftir að frumvarpið kom fram með þessum skattahækkunum, sem eru ekki bara á almenning heldur líka á fyrirtækin og þar af leiðandi oft á almenning hvort sem mönnum líkar betur eða verr, þá hafa sum fyrirtæki sagt upp fólki, sem er nú almenningur, út af kostnaðarhækkunum og þessum skattahækkunum kannski fyrst og fremst.

Ríkisstjórnin sagði í vor að hún ætlaði að koma með húsnæðispakka. Húsnæðispakkinn átti að koma í vor. Í vetur kom hann og ég fylgdist með blaðamannafundinum. Ég geri það ekki alltaf en ég gerði það þá. Ég verð að viðurkenna að mér fannst margt hljóma alveg ágætlega, aðallega þegar talað var um hvað séreignarsparnaðarleiðin væri góð. Mér fannst það gott. Ég skildi að vísu ekki alveg hvernig sá fallegi staður og góða hverfi, Úlfarsárdalur, átti að bjarga einhverju eins og ástandið er núna. Ég ætla ekki að halda því fram að ekki hafi verið minnst á það en þegar rykið hafði sest þá áttaði maður sig á því að þetta voru náttúrlega bara umbúðir fyrir 2,3 milljarða skattahækkun, enn eina skattahækkun. Hvaða afleiðingar hefur sú skattahækkun í för með sér? Hún hefur þær afleiðingar í för með sér að leiga mun hækka. Við vorum að fá tölvupóst, held ég allir þingmenn, rétt áðan þar sem fyrrverandi forystumaður ungra jafnaðarmanna var að kvarta undan því að skattahækkun á fjármagnstekjur hefði sérstaklega slæm áhrif á ungt fólk sem leigir út íbúðir sínar til að fjármagna einhverja hluti. Auðvitað hefur það áhrif þegar þú tekur 2,3 milljarða einhvers staðar. Það liggur alveg fyrir. Þegar allt er tekið saman erum við komin upp í einhverjar 30 milljarða skattahækkanir og er engin leið að halda því fram að þær lendi ekki á almenningi.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin hóf sína vegferð á því að brjóta lög um opinber fjármál. Það var ekki ég sem benti fyrstur á það heldur var það fjármálaráð sem gerði það. Því miður héldu menn ekki áfram þeirri góðu vinnu, ef við getum sagt það, eða því góða vinnulagi sem breið pólitísk sátt var um, sem var ekkert annað en að fara eftir lögunum. Þó svo að það sé alveg rétt að þetta hafi verið mikil breyting þá á enn eftir að ná lengra í því að vinna með þessi lög eða réttara sagt að framfylgja þeim og þróa vinnuaðferðir. Ég verð að viðurkenna að það kom mér mjög á óvart þegar ég áttaði mig á því að ríkisstjórnin ákvað að taka snemmskírn á þessu og skauta í gegnum þetta. Maður er svona að átta sig betur og betur á því hvað liggur þar að baki. Svo koma menn með breytingartillögu sem var samþykkt, annars vegar um stöðugleikaregluna svokölluðu, sem er veik útgjaldaregla, og hins vegar um að taka í raun úr sambandi skuldaregluna. Svo settu menn varnarmálin inn í þessa svokölluðu stöðugleikareglu, útgjaldareglu á þann hátt að hægt sé að hækka það sem er skilgreint sem varnarmál, sem eru í okkar tilfelli að langstærstum hluta borgaraleg verkefni. Þau voru gerð að einum af mörgum liðum sem reiknast ekki inn í útgjaldaregluna og því getur maður hækkað viðkomandi liði án þess að brjóta hana. Allt saman er þetta gert vegna þess að ekki er samstaða innan ríkisstjórnarinnar um að takast á við ríkisfjármálin. Ekki er samstaða innan hennar um að hagræða, þvert á það sem hér hefur verið sagt. Það kemur fram í hækkun í þessum fjárlögum, fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar. Vanalega eru fyrstu fjárlög ríkisstjórnar þannig að menn fara í erfiðu málin og taka erfiðu ákvarðanirnar vegna þess að menn ætla að vera út kjörtímabilið og vonast til þess að ákvarðanir séu svo skynsamlegar að þær skili sér seinna. Í fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar eru útgjöld hækkuð um 143 milljarða á milli fjárlaga.

Reyndar var það þannig, ég man ekki hvort það kom fram á blaðamannafundi eða í fréttatilkynningu, að þegar ríkisstjórnarflokkarnir voru að púsla saman ríkisstjórninni þá þurftu þeir að gera hlé því þetta var svo erfitt, þeir tóku við svo erfiðu búi. Skoðum það, virðulegur forseti, hversu erfitt þetta bú var hjá viðkomandi ríkisstjórn. Það er bara þannig, hvort sem við lítum á skuldir hins opinbera, lífeyrismálin, skuldbindingar með lífeyrisskuldbindingum, skuldir heimilanna, sem samkvæmt Hagstofunni eru lægstar á Íslandi á Norðurlöndunum, eða eignir okkar í útlöndum — sama hvernig við nálgumst þetta er niðurstaðan sú að tekið var við góðu búi þrátt fyrir þessi miklu áföll sem voru Covid, jarðhræringarnar á Reykjanesi og það munaði um WOW, við erum fljót að gleyma en WOW var stórt flugfélag og við fundum fyrir því þegar það lagði upp laupana. Þó svo að enginn vilji kannast við það núna þá var krafa þáverandi stjórnarandstöðu, núverandi stjórnarliða, að við myndum ganga lengra þegar við vorum að hjálpa fólki og fyrirtækjum, sem betur fer gerðum við það, ég held að enginn sjái eftir því. Þetta voru mikil áföll. En samt sem áður er það nú þannig að þegar við berum saman Ísland og t.d. hreina erlenda stöðu þjóðarbúsins, skuldastöðuna, ég tala nú ekki um lífeyrismálin því þar erum við alla jafna fremst meðal jafningja — það skiptir gríðarlega miklu máli, virðulegi forseti, vegna þess að þær þjóðir sem við berum okkur saman við munu lenda í gríðarlega stórum áskorunum vegna þess að aldurssamsetningin er mjög mikið að breytast hjá þeim og kostnaðurinn við þá sem eldri eru er miklu meiri heldur en þá sem yngri eru og þær þjóðir eiga ekki í lífeyrissjóði eins og við, eru með gegnumstreymiskerfi. Þetta þekkir nú hæstv. fjármálaráðherra mætavel. Það er ótrúlega ódýrt, virðulegi forseti, þegar stjórnarliðar leyfa sér að tala um undanfarin ár eins og ekkert hafi skeð, það hafi ekki verið neitt Covid, engar jarðhræringar. Covid hefur kostað okkur örugglega um 300 milljarða, það er erfitt að meta það, jarðhræringarnar um 80 milljarða og einhverja tugi milljarða eða hvað það nú var, alla vega einhverja milljarða, þegar WOW féll. Í ofanálag er það þannig að kostnaður við útlendingamálin og við getum sagt hælisleitendamálin var náttúrlega orðinn gríðarlega mikill fyrir nokkrum árum. Sem betur fer náði síðasta ríkisstjórn að taka það niður og það kemur fram í miklu fleiri málaflokkum heldur en bara þeim sem eru undir dómsmálaráðuneytinu. Kyrrstaðan var rofin í orkumálunum og við erum þar með stofnanir núna og vinnu sem nýtist nýrri ríkisstjórn. Og ég tala nú ekki um þessa gríðarlega miklu byltingu sem er í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi.

Auðvitað eru mörg verkefni og allar ríkisstjórnir eru með stór verkefni, en ég fullyrði það að þegar kemur að opinberum fjármálum er verkefnið mun auðveldara hér heldur en í flestum löndum sem við berum okkur saman við. En fyrstu skref ríkisstjórnarinnar eru þannig að maður hefur áhyggjur af því að það muni breytast hratt. Við sjáum það t.d., virðulegi forseti, að eitt er að það er búið auka hallann. Þegar ríkisstjórnin tekur við fjárlögum þessa árs, 2025, var áætlaður halli 63 milljarðar. Við fengum þær upplýsingar í hv. fjárlaganefnd í september að hann yrði ekki 63 en 19. Nýjustu fregnir, ef við tökum saman einskiptiskostnað vegna ÍL-sjóðs, eru að það verði hugsanlega 7 milljörðum meiri halli en var gert ráð fyrir í september. En við eigum eftir að sjá hver niðurstöðutalan verður í því. Burt séð frá því þá ætti að vera hægur vandi, ef þú ert með 1.600 milljarða kr. tekjur, að ná endum saman og gefa þau skilaboð að menn vildu hallalaus fjárlög. Það er ekki. Hallinn var 15 milljarðar þegar frumvarpið var lagt fram og er 25 milljarðar núna. Það sem kannski skiptir meira máli er lánsfjárjöfnuðurinn sem verður mínus 80 milljarðar á næsta ári.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara í alla þá hluti sem ég hef áhyggjur af, svona þegar við erum að ræða um framtíðina og nánustu framtíð. Ég ætla að vekja athygli hins vegar á því sem lítið hefur verið í umræðunni. Já, bara svo það sé alveg á hreinu þá verður lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs neikvæður um 82 milljarða á næsta ári. Það er kannski besti mælikvarðinn. En ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að útgjöld til varnarmála eigi að vera innan fárra ára 1,5% af vergri landsframleiðslu. Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar við fjármálaáætlun var sú tala 77 milljarðar á ári. Í fjárlögum 2025 er gert ráð fyrir því að framlög til varnarmála séu innan við 7 milljarðar. Það á að fara upp í 77. Þegar utanríkisráðuneytið kom fyrir hv. fjárlaganefnd þá upplýstu fulltrúar ráðuneytisins að þeir væru að vinna með það að varnarmálin væru komin upp í 24 milljarða, ekki 7 milljarða heldur 24 milljarða. Við fylgdum þessu eftir með spurningum um það hvar þeir fyndu þessa 24 milljarða en það hefur ekki komið svar. Það er hins vegar alveg útilokað að lesa annað í það hvað það þýðir en að það sé verið að vinna í því að skilgreina þessi mál. 77 milljarðar, virðulegi forseti, er ekki lítill peningur. Það að við séum komin upp í 24 milljarða af því finnst mér bara mjög áhugavert og er spenntur að sjá hvar menn finna það. Ég held að ég fari rétt með að öll Landhelgisgæslan sé 7 milljarðar og jafnvel þótt menn næðu því öllu saman þar inn þá hækka þessi framlög bara um nokkra milljarða. En það að komast upp í 24 er áhugavert.

Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að við erum ekki að sjá neitt aðhald svo heitið getur í þessum fjárlögum. Við höfum ekki fengið að sjá á nein spil varðandi það hvar menn ætla að ná hagræðingu eða sparnaði í ríkisrekstrinum. Það eru engin frumvörp hér í þinginu sem hjálpa til við það svo heitið getur og reyndar afskaplega fá frumvörp frá ríkisstjórninni. Það liggur fyrir að það verður mikill kostnaður á mörgum sviðum en varnarmálin eru risamál og við sjáum heldur ekki hvernig menn ætla að vinna úr því.

Það sem við sjáum, virðulegi forseti, eru stóraukin ríkisútgjöld, hærri skattar, aukinn hallarekstur og skuldsetning. Kosningaloforð um að hækka ekki skatta á almenning, venjulegt fólk, hafa verið þverbrotin undir formerkjum leiðréttingar, réttlætis, sanngirni, aðhalds á tekjuhlið og glufulokana. Ég verð að viðurkenna að mér fyndist kannski að ef ríkisstjórnin ætti að fá prik fyrir eitthvað þá væri það fyrir orðanotkun. Það er örugglega auðvelt að segja þetta við fólk: Ekki hafa neinar áhyggjur, skattarnir voru ekkert hækkaðir, þetta var glufulokun. Ástæðan fyrir því að þú ert að borga meira er ekki af því þú ert að borga meiri skatta út af skattahækkunum, nei, nei, þetta er bara svona glufulokun. Alveg með ólíkindum.

Virðulegi forseti. Við teljum að verkefnið núna sé að ná hallalausum fjárlögum og gæta aðhalds og hagræðingar í ríkisfjármálum og þess vegna komum við með ýmsar tillögur. Ég heyrði hér talað um að það væri slæmt að vera með eitthvað sem héti flatur niðurskurður. Það er rétt. En ég fullyrði að það væri til bóta ef menn myndu innleiða tæki sem eru til, eins og nokkuð sem við köllum Ráðhildi, tæki sem eykur gagnsæi í ríkisrekstrinum sem er algerlega nauðsynlegt því að allir sem hafa komið að opinberum rekstri vita að það er hægt að spara en þeir sem taka ákvarðanir verða þá líka að vita hver staðan er, hvernig reksturinn er á milli viðkomandi stofnana. Þeir geta notað þetta Ráðhildartæki, sem ég þekki nokkuð vegna þess að við notuðum það í þeirri vinnu sem við fórum í þegar við fórum í sameiningu í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og vorum að byrja að nota þetta yfir allt fyrirkomulagið þar. Það jók gagnsæið gríðarlega og gerði það að verkum að það var hægt að hafa aðhald með stofnunum sem annars væri ekki hægt að hafa aðhald með. Við sjáum oft í fréttum að fólk segir allt of oft, en kannski ekki nógu oft, að það séu allra handa hlutir sem því finnist vera óeðlilegir þegar kemur að opinberum rekstri. Og ráðuneytin, þau vita bara ekki neitt þegar þau nást í fjölmiðlunum. Þetta getur ekki verið eðlilegt.

Hér erum við með tillögu um að koma með 3,5% hagræðingarkröfu á ríkisstofnanir. Það á auðvitað ekki að vera þvert á allar, sama prósenta yfir allt saman, alls ekki. En ég fullyrði að ef menn myndu nota þessi tól, sem heitir í rauninni bara heilbrigð skynsemi, sem eru til staðar þá gætum við náð að lágmarki þessum sparnað yfir heildina, en það væri misjafnt eftir stofnunum. Ég hef verið ráðherra í nærri tíu ár og hef svona eitthvað komið að þessu og það var mikil breyting fyrir mig þegar við fórum að innleiða þetta. Við gerum ráð fyrir aðhaldi á skrifstofum ráðuneyta, aðhaldi í utanríkisþjónustunni, að ráðstöfunarfé ráðherra verði lagt af, lög um opinbera starfsmenn samræmd við almennan vinnumarkað, sem er lykilatriði ef við ætlum að ná árangri í ríkisrekstri, og bættri lausafjárstýringu sem skilar lægri vaxtagjöldum. Við erum að tala um að leggja af Neytendastofu. Land og skógur, við erum sem betur fer með mikið af einkaaðilum sem eru í því þannig að við getum náð því niður. Umboðsmaður skuldara verði lagður niður, hann var stofnaður við allt aðrar aðstæður. Samkeppniseftirlitið er eitthvað þar sem ég held að flestir sem það skoði komist að þeirri niðurstöðu að þeir séu að gera hluti sem skipta okkur miklu máli en þeir eru að gera of mikið og það er ekki nógu vel skilgreint hvert markmiðið er með þeirri löggjöf og þeirri stofnun. Við viljum fá Ríkisútvarpið aftur á fjárlög. Við verðum að horfast í augu við það að hlutverk okkar er ekki bara að halda úti ríkisútvarpi, ríkið á ekki bara að vera á markaðnum, við viljum líka sjá einkaaðila blómstra. Það verður bara að segjast eins og er og við vitum það öll að þar erum við með mjög ójafna samkeppni. Við tölum hér um að sameina héraðsdómstóla, sameina yfirbyggingu ýmissa listastofnana, sameina stofnanir á sviði borgaralegra réttinda. Það eru ýmis verkefni sem við getum náð auknum sparnaði í og þetta er auðvitað ekki tæmandi listi.

Ég held, virðulegi forseti, að sama hvað mönnum finnst um þessar tillögur verði menn að vera óhræddir við að koma fram með tillögur til þess að ræða. Ef þingheimur sameinast um það að hagræða í ríkisrekstrinum og lækka skatta og gjöld á fólk þá væri það auðvitað hægt, en það verður að vera vilji til þess. Við viljum sömuleiðis leggja niður ýmislegt eins og jafnlaunavottun og auðvitað framkvæmd kílómetragjaldsins. Við erum bara ekki tilbúin í þetta. Við viljum að krónutölugjöldin standi í stað og verði ekki hækkuð á milli ára. Við viljum að hætt verði við hækkun vörugjalda á ökutæki, kílómetragjald verði ekki tekið upp á bensín- og dísilbíla og að samnýting hjóna og sambúðaraðila á skattþrepum verði áfram heimil sem og nýting á ónýttum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts, þ.e. í rauninni bara að taka til baka þessar skattahækkanir á almenning. Skattur á leigutekjur verði ekki hækkaður og skattlagningu við sölu fasteigna verði ekki breytt. Séreignarsparnaðarleiðin verði fest í sessi en auk þess þarf að hækka fjárhæðarmörk og lengja heimilaðan nýtingartíma.

Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að til okkar í hv. fjárlaganefnd kom Hagstofan og sagði okkur hluti sem fæstir vita, eins og það að þó svo að það séu gríðarlegar áskoranir í húsnæðismálum þá standa íslensk heimili skuldalega og eignalega betur heldur en önnur heimili á Norðurlöndum. Það hefði aldrei gerst nema með séreignarsparnaðarleiðinni, aldrei. Við eigum að festa hana almennilega í sessi vegna þess að hún virkar.

Við viljum að tekjuskattur 16–18 ára verði lagður af, útvarpsgjaldið verði lækkað, kolefnisgjaldið verði lækkað og endurgreiðsla virðisaukaskatts á byggingarstað hækkuð í 60% og við viljum afnám stimpilgjalds á kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði. Við erum að líta á þrennt. Við erum að líta á heimilin, við erum að líta á húsnæðismálin sérstaklega vegna þess að þar brennur á, og svo auðvitað á ríkissjóð, að hætta skuldsetningu og ná endum saman. Við erum líka að líta til þess að ríkið á eignir sem sumar hverjar skila engu, jafnvel bara kostnaði, en þær gætu orðið hins vegar til mikillar verðmætasköpunar ef það yrði losað um þær. Ef menn í alvöru vilja lækka vaxtakostnað þá losum við auðvitað um eignir. Menn tala t.d. um að það sé gott að eiga banka vegna þess að hann skili svo miklum arði, en þegar þú tekur það allt saman, vaxtakostnaðinn sem við berum af því að eiga hann að láni og sömuleiðis þær tekjur sem ríkið hefur af arðgreiðslum sem aðrir fengju en ríkið, þá komumst við náttúrlega fljótt í plús. Við þekkjum það og það vita það allir sem vilja vita að ríkið er ekki góður fasteignaeigandi. Ríkið á alveg óheyrilega mikið af fasteignum, allt of mikið af fasteignum, og það er enginn vafi að þær myndu nýtast betur og vera í betra ásigkomulagi og sömuleiðis skila meiru ef þær yrðu seldar. Við leggjum til að menn fari að líta þar til 20% af fasteignum ríkisins. ÁTVR á mikið af fasteignum, Íslandspóstur líka og síðan á ríkið gríðarlega mikið af jörðum.

Það er svolítið þannig, virðulegur forseti, að þegar keyrt er um okkar fallega land og þú sérð jarðir í niðurníðslu þá er mjög líklegt að þær séu í eigu ríkisins og við eigum að losa um þær. Það er auðvitað miklu betra að t.d. bændur eigi sínar jarðir heldur en að þeir þurfi að eiga við þetta flókna skrifræði sem er þegar þeir eru ábúendur á ríkisjörðum. Ég þekki það, ekki á eigin skinni heldur bara vegna þess að ég þekki fólk sem er í þeirri stöðu, að það er gríðarlega snúið að eiga við ríkið sem eiganda jarðar sem viðkomandi einstaklingar eða bændur eru ábúendur á.

Fasteignasafn ríkisins telur um 530.000 fermetra í eignum víða um land. Auðvitað er enginn hér að tala um að selja það sem hefur menningar- eða sögulegt hlutverk eða vegna öryggis- eða varnarsjónarmiða, við erum bara að tala um lítið brot af þessu. En við þekkjum líka mörg dæmi þess að þegar menn fara í slíka sölu þá skilar það sér margfalt til baka. Sama með að selja minni hluta í Isavia, sem er fyrirtæki sem er í mikilli samkeppni og það er fáheyrt að slík félög séu í 100% eigu ríkissjóðs í þeim löndum sem við berum okkur saman við og keppum við og ég held að það þurfi ekki að færa mikil rök fyrir því.

Mér finnst svolítið áhugavert að þegar maður skoðar hvað við eigum mikið af fjármálafyrirtækjum, hlutfall okkar, þá erum við á svipuðum stað og Kína. Sem betur fer er stjórnarfarið, alla vega enn sem komið, mjög ólíkt hjá okkur og Kínverjum. Þótt ég hafi áhyggjur af ýmsu þá hef ég ekki áhyggjur af því að við séum að þróast í sama ferli og þeir. En eitt af þeirra vandamálum er hvað þeir eiga miklar eignir.

En aðalatriði málsins er þetta, virðulegi forseti, þegar við tökum þetta allt saman: Það er áhyggjuefni að í fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar — látum vera ef þetta hefðu verið síðustu fjárlögin fyrir kosningar. Ég er ekki að mæla því bót, en látum það vera að þau hefðu þá aukið útgjöldin um 142 milljarða. Það er nefnilega oft sagt að fjárlög rétt fyrir kosningar séu svo mikil útgjaldafjárlög. Að vísu var í síðustu fjárlögum, sem voru kosningafjárlög, aukning um 70 milljarða á milli fjárlaga. En þetta eru fyrstu fjárlögin og það er umhugsunarefni að í fyrstu fjárlögum tvöfaldar ríkisstjórnin aukninguna á við aukningu í fjárlögum sem voru kosningafjárlög. Það er áhyggjuefni að í fyrstu fjárlögunum fari menn og leiti allra leiða til að hækka skatta. En í staðinn fyrir að koma fram og segja: Við erum að hækka skatta — við sjáum það í tölunum — þá segja þau: Nei, nei, þetta eru leiðréttingar, þetta er svo réttlátt, þetta er svo sanngjarnt og við erum að loka glufum.

Þetta er ekkert flókið. Ríkisstjórnin er bara að taka peninga sem annars væru hjá almenningi og færa þá inn í ríkissjóð. Þrátt fyrir skattahækkanirnar ætla menn ekki að ná endum saman. Ég hef áhyggjur því að það liggur alveg fyrir að þessi svokallaða stöðugleikaregla sem útgjaldaregla er orðin það sem menn höfðu áhyggjur af að hún yrði, þ.e. að hún yrði gólf. Hugsunin var og hæstv. fjármálaráðherra sagði að þetta snerist aldrei um það, að vera alveg í þakinu, það væri ekkert að fara að gerast. En þannig er það. Menn eru núna að dansa á hnífsoddi með þessa útgjaldareglu. Það sér hver maður að þegar ríkisstjórnin ákvað að fara í þessa vörugjaldshækkun, og tölurnar sýna það, þá fara allir að hamstra bíla. Það sjá það allir að það mun þýða að þeir aðilar sem eru að kaupa bíla núna í nóvember og desember — það er harla ólíklegt að þeir kaupi á næsta ári. Ef það eru miklu fleiri sem eru að kaupa í nóvember og desember heldur en í fyrra, þá segir það sína sögu. Það segir þá sögu að þú getur ekki gert ráð fyrir því að það verði sama bílasala og þar af leiðandi þær tekjur sem gert var ráð fyrir. En, virðulegi forseti, menn þverskallast við að meta þetta og horfa framan í þessar staðreyndir.

Erfðafjárskatturinn, við erum búin að ræða hann. Í öðrum löndum hefði þótt grafalvarlegt mál að hér væri að koma fram frumvarp sem hækkar verulega skatt en það er ekki sagt frá því með þeim hætti og ekki þannig kynnt. Ef hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. ríkisstjórn eru í alvöru að segja að þetta hafi allt saman verið einhver misskilningur þá hlýtur hæstv. ríkisstjórn að segja: Þetta frumvarp er hér með dregið til baka. Við vitum ekki hvernig það skeði en það var bara einhver misskilningur og allt í einu vorum við komin með skattahækkunarfrumvarp og okkur finnst það mjög leiðinlegt. Ef þau gera það ekki þá er það þannig að hæstv. ríkisstjórn kom fram með skattahækkunarfrumvarp og sagði engum frá því. Hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson sagði algjörlega satt og rétt frá áðan þegar hann sagði frá því hver kynningin var í hv. fjárlaganefnd. Það var aldrei minnst á það einu orði að ríkisstjórnin væri komin fram með frumvarp sem átti að hækka erfðafjárskattinn, ekki einu orði. Það er ekki það að við höfum ekki rætt þetta mál í nefndinni, við þráspurðum um það.

Virðulegi forseti. Við erum náttúrlega komin inn í desembermánuð. Ríkisstjórnin er búin að sýna á spilin. Ég hef áhyggjur af útgjöldunum. Ég hef áhyggjur af hallanum. Ég hef áhyggjur af þessum tekjustofnum sem ég tel að séu veikir. Það mega vera málefnaleg rök fyrir því að t.d. þegar við fáum nýja þjóðhagsspá sem sagði: Hagvöxturinn verður minni, verðbólgan verður hærri — þá hækki tekjuskattur fyrirtækjanna, ef ég man rétt um 1,1 milljarð. Ég hef ekki heyrt þau rök. Er einhvers staðar einhver atvinnugrein þar sem menn segja: Þær breytingar sem hafa orðið í haust hafa orðið til þess að við erum miklu bjartsýnni um næsta ár heldur en við vorum bara fyrir nokkrum mánuðum? Hefur sjávarútvegurinn sagt það? Ég held að það sé aflasamdráttur þar, þó svo að þorskverð sé hátt sem vegur eitthvað á móti, en við erum alla vega ekki í uppsjávarfiskinum. Er ferðaþjónustan að segja: Við teljum að það sé mjög bjart fram undan, við erum svo ánægð með þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og ástandið í alþjóðamálum mun hjálpa okkur þannig að við erum að fara að skila miklu meiri hagnaði eða alla vega meiri hagnaði? Iðnaðurinn? Ja, alla vega ekki á Grundartanga og á Bakka.

Virðulegur forseti. Ég held að það sé mikilvægt í umræðunni að það komi fram hvað þetta er. Af hverju gera menn ráð fyrir því að tekjuskatturinn hækki á milli umræðna? Ég átta mig á virðisaukaskattinum og að menn eru að líta til þess og það er meiri verðbólga. Það eru ekki góðar fréttir. Ég er ekki að efast um að það muni skila meiri krónum í ríkiskassann. Áhyggjur mínar er þessi feluleikur í kringum tekjuöflunina og það t.d. að við séum í fullri alvöru að ræða hvort skattahækkanir séu skattahækkanir, við séum í fullri alvöru að ræða það. Það eru allir að hamstra bíla. Þessir aðilar eru búnir að koma fyrir viðkomandi nefndir, þeir eru ekkert rosalega margir, sem kaupa flesta bíla á Íslandi og þeir segja: Við erum á fullu að kaupa bíla. Ég hef áhyggjur af því að fjármálaráðuneytið segi ekki: Þið þarna hv. þingmenn, slakið þið bara aðeins á, við ætlum að koma með þessar forsendur fyrir ykkur. Við gerðum nú aldeilis ráð fyrir þessu og við ætlum að sýna ykkur tölurnar á bak við þetta þannig að þið þurfið ekki hafa neinar áhyggjur af því að það muni eitthvað annað gerast en að þessi tekjupóstur skili bara því sem við lögðum upp með þegar við hentum þessu inn fyrir nokkrum vikum síðan.

Ég, eins og aðrir, var mjög vongóður. Mér fannst það gott hjá ríkisstjórninni að kalla eftir hagræðingarhugmyndum. Mér fannst gott hjá ríkisstjórninni að fá fínt fólk til verka þó að það hafi ekki fengið kannski jafn mikið umboð og maður hefði vænst, en mér fannst bara gott að menn ætluðu að fara í hagræðingu í ríkisrekstri. En það er svo margt hjá þessari ríkisstjórn sem virðist fyrst og fremst vera umbúðir. Við sjáum ekki merki hagræðingar í þessum fjárlögum og ég vek athygli á því að í fyrstu fjárlögunum aukast útgjöldin um 142 milljarða kr. Í fyrra var aukning um 70 milljarða. Ég vek athygli á því að þrátt fyrir að hallinn 2025 verði miklu minni en áætlanir gerðu ráð fyrir — hvort hann verður 19 eða 26, þau gætu nú kannski hjálpað eitthvað til, öll þessi vörugjöld. Kannski verður þetta bara á núlli, ég veit ekki, ég kann ekki að segja frá því. Menn hljóta að borga vörugjöld af öllum bensín- og dísilbílunum sem er verið að kaupa núna. Ég veit það ekki. En það er alveg ljóst að þetta er miklu betri afkoma en fjárlögin síðustu gerðu ráð fyrir, sem er auðvitað gleðilegt og hefði átt að auðvelda það verkefni ríkisstjórnarinnar að ná hallalausum fjárlögum. Þegar þú kemur að 1.600 milljörðum og ert að horfa á rétt rúmlega 20 milljarða halla, heldurðu að það sé eitthvað mál að ná afgangi? Ekkert mál. En nei, það var farið í að auka útgjöldin meira en tvöfalt heldur en var árin þar á undan, hækka skattana og þau geta ekki hætt, það er bara engin leið að hætta. Eftir að frumvarpið kom fram þá bara héldu menn áfram. 82 milljarðar í neikvæðum lánsfjárjöfnuði.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnarflokkarnir steingleymdu að segja kjósendum frá þessu fyrir kosningar.