fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ræðuna. Framan af óttaðist ég að hv. þingmaður myndi ekki koma inn á tillögur 2. minni hluta varðandi fjárlögin því það var farið um nokkuð víðan völl. Ég ætla að gera honum þann greiða að svara punktum sem hann hefur komið inn á er varða tillögur sem er að finna í fjárlagabandormi um breytingar á erfðafjárskatti. Tilfellið er að það er ekki gert ráð fyrir neinni tekjuaukningu vegna þeirra breytinga sem þar eru inni. Sú breyting sem varð í tengslum við uppfærðar forsendur fjárlaga, sem er ferli sem á sér stað á hverju einasta ári, hafði með endurmat á þessum tekjustofni að gera sem var og er hluti af eðlilegri vinnu fjármálaráðuneytisins og er á hverju ári.
Það er vissulega rétt sem hv. þingmaður segir, að breytingin var mikil miðað við áætlunina en á móti má benda á að þessi tekjustofn hefur verið vanáætlaður í mörg ár og ástæðurnar liggja, eftir því sem ég best fæ ráðið, í því að fyrirfram greiddur arfur hefur aukist og það má raunar sjá merki þeirra tilfærslna í aukinni útborgun fyrstu kaupenda af fasteignum.
Mig langar aðeins til að nýta mér víðfeðma reynslu hv. þingmanns og spyrja um efasemdir hans um útgjöld til varnarmála. Nú var hv. þingmaður einu sinni utanríkisráðherra. Sér hann ástæðu til að efast um mat utanríkisráðuneytisins (Forseti hringir.) á umfangi varnarútgjalda Íslendinga?