fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma í andsvar og mér fannst líka gott hjá hæstv. ráðherra að svara sumu af því eða einu af því sem ég ræddi hérna. Vandinn við svarið hjá hæstv. ráðherra varðandi erfðafjárskattinn er þó að það gengur ekki upp, þetta gengur bara ekki upp. Það gengur ekki upp að hæstv. ráðherra komi hér og haldi því fram að það verði ekki tekjuaukning af þessu frumvarpi. Ég las upp úr umsögninni hérna. Ég var ekki að lesa upp úr öllum umsögnunum. Ég var bara með Deloitte Legal sem greindi það nákvæmlega að þegar þú hækkar andlagið þá mun það skila meiri skatttekjum og hækka erfðafjárskattinn. Hæstv. ráðherra kann alveg vel að reikna og hann veit að það eru margar leiðir til að hækka skatta og ekki bara sú að hækka prósenturnar. Ef frumvarpið hækkar andlagið — það er líka vandinn, ég held það sé enginn að deila um það. Kynslóðaskipti verða nokkurn veginn ómöguleg meðal bænda en það er miklu fleira þarna inni vegna þess að þetta hækkar skattinn. Ef þetta myndi lækka skattinn eða vera hlutlaust þá skipti það auðvitað engu máli. Mér finnst miður að hæstv. ráðherra sé að berja höfðinu við steininn vegna þess að það sjá þetta allir. Ég hvet hæstv. ráðherra til að lesa umsagnirnar því þeir sem lesa umsagnirnar og þekkja þetta best sjá þetta mjög vel. Og af því að hæstv. ráðherra spyr um mitt fyrra ráðuneyti er það rétt, ég var utanríkisráðherra í tæplega fimm ár. Ég hef ekki séð neitt frá utanríkisráðuneytinu um hvernig matið er á þessum verkefnum. Ég bað um það. Ég fékk töluna 24 milljarðar sem er mun hærri tala en ég hef nokkurn tímann séð. Þess vegna bað ég um útlistun á því og ég bíð enn eftir þeirri útlistun.