fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir annað andsvar en hann var í slíkri mótsögn við sjálfan sig að ég hef nú sjaldan heyrt annað eins. Hæstv. ráðherra, sem er farinn, segir: Ég sagði sérstaklega að ég hefði áhyggjur af kynslóðaskiptum bænda þegar ég lagði þetta frumvarp fram. Bíddu, af hverju hefur hann áhyggjur af því? Ha? Af hverju? Nú, af því að hann hækkaði skattinn. Það er þess vegna. Bóndadóttirin eða bóndasonurinn sem ætlar að erfa sauðfjárbú hefur ekki efni á því vegna þess að erfðafjárskatturinn er svo hár. Allt í einu er einhver jörð sem gefur ekkert af sér, sauðfjárjörðin, bara metin á 500 milljónir. Þá þarf erfinginn að borga 50 milljónir. Það eru mjög fáir sem eiga slíkt í vasanum, sko, eða í bókinni undir sænginni. Það er það sem hæstv. ráðherra hefur áhyggjur af. Þess vegna sagðist hann hafa áhyggjur af því, vegna þess að þetta hækkar skattinn. Hæstv. ráðherra getur ekki komið og sagt: Ég sagði að ég hefði áhyggjur af því að skatturinn myndi hækka en ég gerði nú ekki ráð fyrir að skatturinn myndi hækka neitt. Það getur ekki bæði verið rétt þannig að hæstv. ráðherra var að staðfesta það sem er búið að segja hér í þessu andsvari. Hann sagði beinlínis: Ég hef áhyggjur af því að skatturinn muni hækka svo mikið að það geti ekki orðið kynslóðaskipti í landbúnaði. Um leið flutti hann málið sem hækkaði skattinn. Síðan segir hann: Við gerðum ekki ráð fyrir neinum auknum tekjum. Ef ekki væru neinar auknar tekjur væri ekkert vandamál og hann hefði ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af kynslóðaskiptum í landbúnaði. Vegna þess hins vegar að hann kom með skattahækkunarfrumvarp hefur hann eðlilega áhyggjur (Forseti hringir.) og það eru ekki bara kynslóðaskipti hjá bændum.
Virðulegur forseti. Það er miklu fleira sem tengist skattahækkunum í þessu frumvarpi sem bent er á í umsögnum (Forseti hringir.) og ég næ ekki að klára á tveim sekúndum.