fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir yfirferðina á þessu nefndaráliti 3. minni hluta. Ég er með nokkrar spurningar varðandi liði sem koma fram á blaðsíðu 13 til þess að hjálpa hv. þingmanni að finna hvar þetta er. Það eru margar góðar hugmyndir sem koma fram í þessu og þess vegna vil ég bara fá betri útlistanir á þessu. Hér nefndi hv. þingmaður innleiðingu á verkefni sem heitir Ráðhildur og ég hef aðeins þekkingu á eða þekki til. Hér kom fram í ræðu hv. þingmanns að þetta væri 3,5% hagræðingarkrafa á ríkisstofnanir en þó ekki sama krafa á allar ríkisstofnanir. Það væri áhugavert að fá að heyra samt svona einhverja smá útlistun, ef hún er til, á því hvernig menn ætla sér að fara í þessa hagræðingu. Í andsvari áðan mælti ég ekki fyrir því að menn væru að fara í flatan niðurskurð, ég teldi það ekki skynsamlegt.
Eins langar mig líka að fá upplýsingar frá hv. þingmanni varðandi þessa tillögu um 25% aðhald í utanríkisþjónustunni, hvort hann geti upplýst mig um hvað er verið að fjalla um þar. Síðan að lokum hér í fyrsta andsvari mínu: Einmitt á blaðsíðu 13 er lagt til skref varðandi sameiningar. Þar er talað um stofnanir á sviði borgaralegra réttinda og ýmsar stofnanir á sviði lista, hvort hv. þingmaður geti aðeins útlistað betur fyrir okkur hvað átt er við með því. — Ég læt þetta duga í bili. Takk.