fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalegar og góðar spurningar eins og hans er von og vísa. Hugmyndin með opinberum fjármálum, svo við förum í það, er að þú ert að auka sveigjanleikann innan ráðuneytanna. Hugmyndin var sú, þegar hún var kynnt á sínum tíma og við gerðum þetta, að við kæmum með fjáraukalög sem væru ekki fastmótuð heldur gætum gert þetta oftar en einu sinni á ári, að ef t.d. ráðuneyti myndi ákveða það, m.a. af því að það gæti komið auga á sparnað á einhverjum stað, gæti það jafnvel fært fjármagn yfir á annað málefnasvið. Ríkisstjórnin myndi jafnvel ákveða að færa það á milli ráðherra eða ráðuneyta. Ráðhildur, sem hv. þingmaður nefnir, er í rauninni bara gegnsæistól. Gefum okkur sem dæmi að einhver stofnun sé með mjög háa reikninga út af sérfræðiþjónustu, þá er hægt að skoða sérstaklega hvað það er, t.d. ef þú sérð að viðkomandi stofnanir eru ekki að nota Ríkiskaup eða opinber innkaup fara ekki eftir rammasamningum eða viðlíka, eins og að starfsmannakostnaður sé mun meiri á einum stað en á öðrum sambærilegum. Þetta er í rauninni ekkert flóknara en það. Þegar við fórum að nýta okkur þetta og vorum með upplýsingarnar sáum við að tækifærin voru mörg. Það eina sem við getum hins vegar gert í stjórnarandstöðu er að koma fram með þessa tillögu. En veldur hver á heldur og hvernig framkvæmdin fer veltur á því hvernig viðkomandi ríkisstjórn hyggst framkvæma hana. En þetta er tæki til að láta það vera.
Hinar tillögurnar eru nú svona gamlar. Ég held að þær séu nú bara úr gömlu hagræðingaraðgerðunum sem ég, Vigdís Hauksdóttir, Unnur Brá og Ásmundur Einar vorum með á sínum tíma. Við vorum að skoða mál varðandi Þjóðleikhúsið, hvort það var ekki Sinfónían og einhverjar aðrar stofnanir um landið. Að borgaralegu réttindunum sneru umboðsmaður barna, Mannréttindastofnun og einhverjar fleiri stofnanir. (Forseti hringir.) Ég er ekki alveg með það í kollinum núna. En aðalatriðið, og það eru allir sammála um það, er að það er ekki gott að hafa smáar stofnanir. (Forseti hringir.) Við þurfum að hafa þær fáar og sterkari og þá þurfum við bara að ganga í það.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á ræðutímann.)