fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svörin. Þá liggur við að spyrja bara næst, vegna þess að hv. þingmaður er búinn að vera ráðherra í að minnsta kosti tveimur, ef ekki þremur, ríkisstjórnum: (GÞÞ: Þremur.) Hvers vegna í ósköpunum, hv. þingmaður, er ekki búið að framkvæma þetta á fyrri stigum? Því að hér, eins og þú segir, koma fram tillögur um það að leggja niður Neytendastofu. Hér er talað um að framlög til Lands og skóga séu skorin niður, Samkeppniseftirlitið skorið niður o.s.frv. Það væri bara ágætt að heyra frá hv. þingmanni hvað hefur í raun tafið þessar aðgerðir.