157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:25]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að ég hef verið í þremur ráðuneytum í nærri tíu ár, en það var hins vegar einn ákveðinn galli við það allt saman; ég var aldrei einvaldur. Kannski var það kostur en hins vegar tel ég að reynsla mín á þessum sviðum geti bara nýst ágætlega. Þegar ég var heilbrigðisráðherra fyrir 2007–2009 þá sameinuðum við heilbrigðisstofnanir. Ég veit ekki til þess að neinn vilji snúa því við. Það var sagt að það væri ekki hægt og að vísu var farið fram á afsögn mína þegar ég fór í það verkefni, en það var nú svolítið meiri hiti þá en nú. Hv. þingmaður man það kannski, ég veit það ekki. Við stofnuðum Sjúkratryggingar Íslands að norrænni fyrirmynd til þess að bæði meta gæði og kostnað við heilbrigðisþjónustu og ég held að flestir sem að málum koma séu sammála um að við ættum að fylgja lögunum betur eftir. Það hefur þó verið í tíð síðasta hæstv. heilbrigðisráðherra að stigin voru skref sem skipta máli. Í síðasta ráðuneyti fór ég af stað með tíu stofnanir og ætlaði að gera þær að þremur. Þingið leyfði mér bara að gera þær að fimm. Ég held að þessi ríkisstjórn, þó að ég hafi nú ekki mikla trú á henni, muni ekki skipta þeim upp aftur.

Það sem ég er bara segja, virðulegi forseti: Þetta er allt saman hægt en það verður að vera pólitískur vilji til þess. Ef ég má alla vega ráðleggja af minni reynslu þá gengur ekki alltaf allt upp en þá er það undirbúningurinn sem skiptir gríðarlega miklu máli. Þú þarft að fara strax í hann vegna þess að þetta tekur tíma. Það veldur mér vonbrigðum núna að við séum ekki að sjá neitt slíkt. Við verðum að sjá að menn haldi áfram. Ég sá að hæstv. atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra héldu blaðamannafund um að þeir ætluðu að halda áfram með verkefni sem ég og þáverandi atvinnuvegaráðherra vorum með um einföldun á heilbrigðiseftirliti og málum því tengdum. (Forseti hringir.) Þeir töluðu um að þetta væri mesta einföldun í sögu þjóðarinnar en gleymdu að segja frá því að þeir væru að halda áfram verkefni sem er búið að vera í gangi í tvö ár. (Forseti hringir.) Ég vona að menn haldi því áfram. Af hverju var þetta ekki gert? Það er ekki gott að segja. (Forseti hringir.) Sem betur fer var margt gert og ég held að menn vilji ekki hætta því. (Forseti hringir.) En við þurfum að halda áfram til að ná árangri og ég þakka virðulegum forseta (Forseti hringir.) fyrir þolinmæðina (Forseti hringir.) og biðst afsökunar.