fjárlög 2026.
Frú forseti. Fyrstu fjárlög nýrrar ríkisstjórnar hafa litið dagsins ljós. Þau eru sett fram á ábyrgð stjórnmálaflokka sem fóru af stað með óvenjulega stórkarlalegar yfirlýsingar um fyrirhugaðan árangur í efnahagsmálum. Óhætt er að segja að fjárlögin séu vonbrigði fyrir þá fjölmörgu sem trúðu á sleggju forsætisráðherra og ætluðu að reiða sig á að vextir myndu lækka hratt með nýrri ríkisstjórn eða þá sem stóðu í þeirri trú að stjórnmálamennirnir stæðu við loforð sín um að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning og fyrirtæki í landinu.
Fjármál ríkisins standa á ákveðnum tímamótum. Eftir langt samfellt tímabil útgjaldaaukningar, bæði vegna ytri áfalla og aðgerðaleysis stjórnvalda hvað varðar útþenslu ríkisbáknsins og ofsaeyðslu í tiltekna málaflokka, er brýnasta verkefni stjórnvalda að sýna þétt aðhald í ríkisrekstrinum.
Frú forseti. Aðhald í ríkisútgjöldum er áhrifamesta tæki stjórnvalda til að hafa áhrif á verðbólgu og vexti og kemur bæði atvinnulífi og almenningi til góða. Eina úrræði ríkisstjórnarinnar hefur sýnt sig vera að leggja sífellt meiri álögur á fólk og fyrirtæki. Þær álögur bitna ekki síst hart á landsbyggðinni. Hvað svo sem menn vilja kalla allar þessar skattahækkanir munu þær koma niður á fjárfestingu og framleiðni fyrirtækja og þynna veski almenns launafólks. Skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar, ásamt því að ekki er tekið á útgjaldavexti ríkisins, eru vísbending um að stjórnarflokkarnir átti sig ekki á samspili vaxtarskilyrða í atvinnulífi og tekna ríkissjóðs. Lausatök ríkisstjórnarinnar í þessum efnum bera vott um að hún hafi engin tök á útgjaldahlið ríkisfjármála. Útgjöld ríkissjóðs aukast að raunvirði um tæpa 80 milljarða eða 5,4% milli ára og það fjármagn kemur hvergi nema úr vösum skattgreiðenda. Á sama tíma er spáð minni hagvexti en gert var ráð fyrir og nýleg áföll í útflutningsgreinum gætu enn aukið á vandann.
Frú forseti. Bæði er fjárhagsleg staða ríkissjóðs og vaxtaumhverfi í landinu með þeim hætti að tafarlausra aðhaldsaðgerða er þörf. Verðbólga hefur reynst þrálát og óvissa um framvindu mikilvægra þátta í efnahagsmálum þjóðarinnar er veruleg. Seðlabankinn hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að ríkisfjármálin eins og þau birtast í fjárlögum styðji við vaxtalækkunarferlið. Í því samhengi skiptir öllu að fjárlög séu aðhaldssöm fremur en hlutlaus. Frumvarp ríkisstjórnarinnar stenst ekki þessi skilyrði. Miðflokkurinn telur að ef ríkisvaldið ætlar að létta undir með heimilum og fyrirtækjum verði fjárlög að vera afdráttarlaus, aðhaldssöm og miða að hallalausum rekstri. Það er ekki síst nauðsynlegt til að geta hafið niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs en vaxtagjöld ríkisins eru að verða stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í ríkisfjármálunum.
Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur í stað þess að draga markvisst úr útgjöldum kosið að fjármagna aukin útgjöld með skattahækkunum. Um leið er gert ráð fyrir því að skatttekjur muni lítið dragast saman þrátt fyrir, frú forseti, að augljóst sé að skattborgarar breyti hegðun sinni við aukna skattheimtu. Þannig er ekki horft til þess þegar ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að hömlulausar skattahækkanir muni bara auka tekjur ríkissjóðs. Skattgreiðendur eru ekki ótakmörkuð auðlind. Þetta er svipað því að veiða í lítilli tjörn. Þú getur veitt ákveðið magn en ef þú ætlar að auka magnið kemur að því að veiði minnkar.
Frú forseti. Upptaka kílómetragjalds er til þess fallin að hafa veruleg neikvæð áhrif á ferðaþjónustu sem er ein öflugasta stoð tekjuöflunar ríkissjóðs og því unnt að segja að verið sé að grafa undan efnahag þjóðarinnar með upptöku gjaldsins. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá því að víða um land þurfa íbúar að sækja sér þjónustu, jafnvel lögbundna, um langan veg sem kallar á aukinn kostnað verði kílómetragjaldið að veruleika. Því er enn og aftur verið að auka skattheimtu bifreiðaeigenda. Tvöföldun veiðigjalda getur dregið úr skatttekjum af sjávarútvegi eins og fjölmörg sveitarfélög bentu á og stuðlar því beinlínis að minni skatttekjum til lengri tíma.
Annar minni hluti, sem ég tala fyrir hér, telur að við gerð fjárlagafrumvarpsins sé ekki nægilega litið til þess hvaða áhrif miklar sviptingar á vinnumarkaði á umliðnum vikum og mánuðum geti haft á aukið atvinnuleysi á nýju ári. 2. minni hluti telur þannig að ekki sé hugað nægilega að breyttum forsendum sem skapast við hækkun skatta og því fyrirséð að forsendur fjárlagafrumvarpsins og þar með stöðugleikareglunnar séu brostnar ef ekki er dregið jafnframt úr útgjöldum.
Þá má sjá sömu tilhneigingu í þá átt að meta forsendur skattstofna hærri án sannfærandi rökstuðnings. Þannig er gert ráð fyrir á milli umræðna um fjárlög að erfðafjárskattur skili 2,1 milljarði kr. meira í ríkissjóð heldur en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Hvernig meiri hlutinn reiknar þetta er 2. minni hluta hulið. Hvort gerð hafi verið sérstök rannsókn um vænt andlát á næsta ári eða hvort þarna sé einungis verið að stoppa upp í reglur stjórnarinnar um stöðugleika er óljóst.
Ég ætla aðeins að staldra við erfðafjárskattinn og ræða hann örlítið nánar. Það er gert ráð fyrir því í fjárlögum og forsendum fjárlaga að erfðafjárskattur hækki á milli 1. og 2. umræðu um 2,1 milljarð. Í hv. fjárlaganefnd spurðum við mikið um þetta, hvers vegna þetta væri, og fengum loks svar frá fjármálaráðuneytinu sem var ansi loðið. Það var einhvers konar útreikningsaðferð um að þetta gæti hækkað og myndi hækka frá upphaflegum áætlunum. Það er ekki sannfærandi að erfðafjárskattur taki allt í einu upp á því að hækka á milli umræðna, milli september- og nóvembermánaðar. Ég veit ekki hvað býr nákvæmlega þar á bak við. Nema hvað, frú forseti, þegar hinn svokallaði bandormur birtist, þ.e. breyting á ýmsum lögum sem varða fjárlög, kom þar fram breyting á lögum um erfðafjárskatt. Þessi breyting bar nú ekki með sér að vera merkileg og sneri aðallega að því hvernig ætti að meta þá skattstofna til erfðafjárskatts sem væru taldir fram til skattsins, þ.e. það ætti í einhverjum tilvikum ekki að meta hlutinn eftir fasteignamati heldur ætti að fara fram sérstakt mat ef grunur væri um það að markaðsverð þessara eigna væri hærra heldur en fasteignamat gerði ráð fyrir og sérstaklega tekið fram hvað varðar land. Menn vöknuðu svo upp við vondan draum þegar umsagnir fóru að berast til efnahags- og viðskiptanefndar sem voru margar hverjar á sömu lund. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson las nú upp úr einni umsögn hér áðan frá endurskoðunarfyrirtæki sem er svipuð umsögn eða sambærileg og ég er með hér frá KPMG sem sendi inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar hvað þetta varðar og ætla ég að lesa hér, með leyfi forseta, upp úr þeirri umsögn. Þetta er umsögn um aðallega þessa breytingu á erfðafjárlögum:
„Sé litið til textans í frumvarpinu hvað þetta varðar má ætla að um sé að ræða minni háttar breytingar“ — eins og menn héldu — „en svo er ekki. Verði frumvarpið samþykkt þá er ljóst að ákveðinn hluti framkvæmdar erfðamála verður í uppnámi og veruleg óvissa mun skapast í málaflokknum auk þess sem verulega íþyngjandi kröfur verða lagðar á herðar þeim sem njóta arfs.“
Síðan fara þeir yfir tildrög þessara breytinga sem er einhvers konar ábending frá ríkisskattstjóra um að þessu þurfi að breyta í tilefni af einhverjum úrskurði sem gekk hjá yfirskattanefnd og ætla ég kannski ekki að fara ítarlega í það. Með leyfi frú forseta, les ég aftur upp úr umsögninni síðar:
„Lagt er til að við b-lið 3. mgr. 4. gr. bætist við nýr málsliður sem kveður á um að „land skal þó miða við markaðsverð nema telja megi að mismunur þess og fasteignamats sé óverulegur“.“
Hér þarf ekki fleiri vitnanna við. Þarna er raunverulega verið að fara að hækka erfðafjárskattinn vegna þess að þarna er bara berum orðum sagt að ef verðið er eitthvað annað heldur en fasteignamat þá eigi að meta það. Sjáið þið flækjustigið fyrir ykkur fyrir erfingja sem er að gera upp bú? Síðan segir, með leyfi frú forseta:
„Að okkar mati er mjög óljóst hvað felst í þessari viðbót, meðal annars er ekki ljóst til hvers konar eigna verið er að vísa. Engin sérstök skilgreining er á því hvað felst í hugtakinu „land“ og sú óvissa mun bjóða upp á mismunandi túlkun og réttaróvissu. Fram til þessa hefur verið látið við það sitja, á grunni skýrra lagaákvæða, að allar fasteignir skuli metnar til skattstofns erfðafjárskatts miðað við opinbert og skráð fasteignamat, enda á það lögum samkvæmt að endurspegla raunverð. Óheppilegt er að víkja eigi frá því skýra viðmiði með óskýrum hætti.“
Hvernig á að meta þetta og hvað tekur það langan tíma? Er hægt að skjóta því eitthvert annað? Ímyndið ykkur tafirnar. Ég sé alveg fyrir mér, frú forseti, þegar um er að ræða einhvers konar jarðir sem oft og tíðum eru metnar kannski lágar, þó að það séu kannski landmiklar jarðir til sauðfjárræktar eða eitthvað slíkt og gefi ekki mikið af sér eins og allir vita, að ef slík jörð færi til arfs og yrði metin þá gætu menn farið að sjá ýmsa möguleika, t.d. virkjunarmöguleika ef það væru einhverjir lækir þarna eða ár, kannski möguleika til kolefnisjöfnunar ef jörðin er vel til þess fallin að rækta þar skóg. Slíkar jarðir fara kaupum og sölum á gífurlegu verði. Ef á þessari jörð er nú eitthvert ferðamannaaðdráttarafl þá gætu menn hugsað sér að selja þar inn á eins og svo algengt er í dag, nú eða að reisa hótel. Hvers lags matsverð gætum við farið að sjá á jörð í slíkum tilvikum, frú forseti? Það myndi enginn sauðfjárbóndi eða sonur sem væri að taka arf geta staðið undir greiðslu erfðafjárskatts af slíku mati. Þetta er hrein og klár skattahækkun í fjölmörgum tilvikum. Ég ætla ekki að fara í önnur ákvæði þessara breytinga sem fjalla um ýmislegt annað en bara land en þarna er verið að flækja uppgjör dánarbúa stórlega, lengja í tímanum og stórhækka stofn að erfðafjárskatti. Þetta er mjög, að mínu mati, frú forseti, hættuleg breyting sem verður með öllum ráðum að stöðva. Ég ætla að lesa aðeins meira úr umsögn KPMG svona í lokin vegna þess að það er önnur breyting þarna sem þeir gera athugasemdir við, með leyfi forseta:
„Lögð er til breyting á 10. gr. laga um erfðafjárskatt. Þar er lögð til sú efnislega breyting að Ríkisskattstjóra verði veitt heimild sambærilegri þeirri sem finna má í 97. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Þar er megininntakið það að skattyfirvöldum er heimilt að endurákvarða skattstofna allt að sex ár aftur í tímann.“
Sex ár. Hver er núverandi frestur skattstjóra til að taka upp dánarbú og endurákvarða ef hann sér eitthvað athugavert? Þrjú ár? Nei, 40 dagar. 40 daga frestur, mjög eðlilegt, ekki komið í bakið á neinum. Getið þið ímyndað ykkur stöðuna sem getur komið upp ef ríkisskattstjóri tekur þetta upp kannski fimm eða sex árum seinna og erfingjarnir eru komnir hingað og þangað, jafnvel orðnir blankir eða eitthvað annað og ábyrgð þeirra er sameiginleg á greiðslu erfðafjárskatts? Hvaða helsi verða lögð á hendur einstökum erfingjum, fimm eða sex árum seinna ef menn taka upp á að endurákvarða og hækka skattinn? Þetta er ekki bara slæm tillaga, þetta er ekki bara slæmt frumvarp, þetta er algjörlega óboðlegt, frú forseti. Þetta frumvarp þarf að fara beint í ruslafötuna.
Frú forseti. Nú höldum við áfram en hvort sem er þá er sjónarspilið í kringum stöðugleikaregluna oft kátbroslegt, en þessari reglu kom stjórnin sér sjálf upp. Hún kom sér sjálf upp þessari reglu sem við köllum stöðugleikareglu og telur stjórnarmeirihlutinn að hún muni leysa allan fjárhagsvanda ríkisins. Fjárhagsvandi ríkisins stendur og fellur með þessari reglu. Hvernig er staða þessarar reglu í dag? Hún hangir á bjargbrúninni. Það munar einhverjum krónum að menn fari og brjóti hana bara miðað við frásögn meiri hlutans sjálfs. Við teljum þó að það sé ýmislegt þarna í forsendunum sem valdi því að við séum komin fram af þeirri brún. Þessi regla, frú forseti, er raunverulega útbúin af stjórninni sjálfri. Það gerist ekkert ef hún er brotin. Það gerist ekkert, það gerist ekki neitt, það stöðvast ekkert en hún er heilög og að sjálfsögðu munum við í stjórnarandstöðunni herma hana upp á stjórnina ef menn stíga þar yfir strikið og höfum, frú forseti, gaman af.
Þrátt fyrir að gefið sé í skyn í frumvarpinu að það hægi á útgjaldavexti er raunverulega staðan sú að heildarútgjöld ríkisins halda áfram að vaxa og ber nú svo við að útgjaldavöxtur í milljörðum talið á milli ára hefur rúmlega tvöfaldast frá fjárlagafrumvarpi síðasta árs. Í tengslum við fjárlagafrumvarpið og fjármálaáætlun hefur ríkisstjórnin lagt fram frumvörp sem beinlínis kveða á um aukin ríkisútgjöld til framtíðar, frú forseti, og jafnvel án þess að metin séu áhrifin til lengri tíma. Dæmi um þetta eru áform um að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu sem þegar hefur verið metið að kalli á 10–12 milljarða kr. aukningu ríkisútgjalda á næstu árum óháð aðstæðum í efnahagslífinu.
Frú forseti. Á það var bent af hálfu háskólaprófessors sem nú gegnir stöðu fjármála- og efnahagsráðherra að samþykkt slíks frumvarps myndi leiða til þess að fjárlög yrðu ósjálfbær. Umsögn þessi, frú forseti, er þyngsti dómurinn um óraunhæfar tillögur Flokks fólksins í þessu efni og leiðir af sér að útilokað hlýtur að vera, frú forseti, að samstarfsflokkar hans í ríkisstjórn geti léð máls á samþykkt tillagna af þessu tagi.
Þá hefur Alþingi nýlega samþykkt lögfestingu alþjóðasamnings um réttindi fatlaðs fólks á þeirri forsendu að það leiði ekki til aukningar útgjalda hins opinbera. Nú þegar eru uppi áform um málshöfðun á hendur sveitarfélögum til að freista þess að hnekkja þeirri forsendu ríkisstjórnarinnar. Það eru þegar uppi áform um að hnekkja þessari forsendu, að þetta kosti ekki neitt.
Auk þessara útgjaldamála til lengri tíma slær ríkisstjórnin ekkert af síendurteknum áformum um einskiptisútgjöld. Nefna má 2 milljarða kr. útgjöld vegna skattfrjálsrar eingreiðslu að fjárhæð 73.390 kr. til 18.000 aldraðra og um 13.000 öryrkja og að auki til 5.000 manna sem þiggja sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Og hvaðan skyldi þetta koma? Hvaðan skyldi hugmyndin að þessari greiðslu koma? Er þetta uppfinning þessarar ríkisstjórnar? Er þetta góðvild þessarar ríkisstjórnar? Nei, getið nú til, frú forseti. Getum okkur til. Þessi eingreiðsla á rætur að rekja allt aftur til Covid-aðgerða frá árinu 2020 en lifir nú sjálfstæðu lífi í boði þessarar ríkisstjórnar sem hreykir sér og kynnir þessi útgjöld sem jólabónus. Eftir sem áður, frú forseti, er greidd desemberuppbót til þessa sama fólks. Þessa greiðslu má upphaflega rekja til greiðslna vegna Covid. Þetta er ekki uppfinning þessarar ríkisstjórnar. Þetta er ekki jólabónus sem þessi ríkisstjórn upphugsaði sjálf heldur er hún að framlengja Covid-aðgerð. Við skulum bara kalla hlutina réttum nöfnum.
Frú forseti. Skuldir í dag eru skattar morgundagsins. Það er satt. Skuldirnar sem við stofnum til í dag verða skattar á morgun. Við þurfum að borga þetta einhvern tímann. Viðskiptaráð bendir á í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið að frá árinu 2019 hafi skuldir ríkissjóðs aukist um rúma 1.400 milljarða kr., úr 890 milljörðum í 2.320 milljarða. Skuldirnar hafa þannig þrefaldast tæplega á átta árum og segir í umsögninni að afleiðingin sé sú að vaxtagjöld eru orðin næststærsti útgjaldaliður í fjárlagafrumvarpi ársins 2026. Frá árinu 2019 hafa vaxtagjöld hækkað úr 47 milljörðum í 125 milljarða á næsta ári, 2026. Viðskiptaráð bendir á að vaxtagreiðslur af skuldum ríkissjóðs eru orðnar kostnaðarsamari en rekstur Landspítala, Háskóla Íslands og Vegagerðarinnar. Jafnframt segir að ef skuldasöfnun haldi áfram muni það leiða til þess að minna svigrúm, að sjálfsögðu, verði til lækkunar skatta eða að fjármagna aðra þjónustu ríkisins. 2. minni hluti tekur undir þessa gagnrýni og telur brýnt að horfið verði af braut útgjaldaaukningar.
Frú forseti. Lækkun á skuldum ríkisins er nauðsynleg til að fé sem annars rynni til vaxtagreiðslna fái farveg í heilbrigðiskerfið, skólana og til að létta undir með þeim sem búa við bágust kjör í okkar samfélagi. Lækkun á skuldum ríkisins er lykilatriði þannig að menn geti gert það sem ríkisvaldið á að gera og gert það betur.
Frú forseti. Af tveimur leiðum til að minnka halla ríkissjóðs hefur ríkisstjórnin valið verri kostinn, að hækka skatta á almenning og atvinnulíf. Ríkisstjórnin virðist ekki hafa burði til að leitast við að taka á stjórnlausri útgjaldaaukningu ríkisins. Og hver eru skattaáform þessa fjárlagafrumvarps og þeirra frumvarpa sem því fylgja og skattaáform sem hafa verið lögð fram að undanförnu í boði þessarar ríkisstjórnar? Það er kílómetragjaldið, 3,3 milljarðar, vörugjöld á bifreiðar, 7,5 milljarðar, fjármagnstekjuskattur á leigutekjur sem ég mun koma aðeins betur að síðar í ræðu minni, 1,6 milljarðar, afnám samsköttunar á skattþrepum milli hjóna, 2,8 milljarðar. Ég mun koma aðeins betur að því líka síðar í ræðunni. Veiðigjöldin voru tvöfölduð, 7,6 milljarðar, jöfnunargjald raforku, 1,9 milljarðar, afnám persónuafsláttar til fjármagnstekjuskatts, 700 milljónir. Samtals eru þetta, frú forseti, 25 milljarðar, skattaaukning þessarar ríkisstjórnar hingað til. Þarna er ótalið það sem ég minntist á áðan um hækkun erfðafjárskatts sem vafi leikur á um, frú forseti. Kannski getur hæstv. ráðherra svarað því til hér hvort það eigi að teljast sem einhvers konar breyting á forsendum erfðafjárskatts eða skattahækkun, eins og ég er búinn að leiða rök að hér með upplestri og umsögnum um erfðafjárskattinn.
Skattahækkanir nýrrar ríkisstjórnar nema því 25 milljörðum. Talsmenn atvinnulífsins hafa varað við afleiðingunum af skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Stórauknar skattgreiðslur sem sækja á í ferðaþjónustu og sjávarútvegi munu koma niður á getu greinanna til fjárfestinga og nýsköpunar og hvetja til samþjöppunar, t.d. í sjávarútvegi. Þetta er gert á sama tíma og samdráttur er á verðmætustu mörkuðum ferðaþjónustu. Íslenskur iðnaður keppir á heimsmarkaði og nú sætir mikilvægur hluti hans sérstökum tollum af hálfu Evrópusambandsins sem kaus að brjóta ákvæði EES-samningsins.
Við upptöku kílómetragjalds mun Ísland vera eina landið í Evrópu sem notast við slíkt gjaldtökukerfi sem aðrar þjóðir hafa ekki tekið upp eða horfið frá sökum flækjustigsins sem því fylgir. Regluverkið og umfangið við eftirlit, álagningu og hátt hlutfall leiðréttinga veldur því að fyrirséð er að utanumhaldið muni valda fjölda einstaklinga og fyrirtækja, ekki síst í ferðaþjónustu, bæði erfiðleikum og kostnaði. Á það ber að líta að bifreiðaeigendur greiða 78 milljarða í skatta vegna bifreiða sinna en innan við 50 milljarðar fara í að viðhalda og byggja upp vegakerfið.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið og að það feli í sér jafn íþyngjandi áform fyrir íslenska ferðaþjónustu og raun ber vitni. Samtökin benda á í sinni umsögn að upptaka kílómetragjaldsins sé ekki aðeins íþyngjandi kostnaður og auki flækjustig vegna innheimtunnar fyrir ökutækjaleigur heldur muni hafa neikvæð áhrif á eftirspurn einstaklinga eftir ferðalögum til Íslands. Þetta er það sem ég er að tala um þegar ég er að tala um forsendur fyrir þessum skattahækkunum. Þú veiðir ekki sama fiskinn tvisvar, þú veiðir ekki endalaust úr lítilli tjörn. Það kemur að því að þú hættir að veiða þann afla sem þú ert vön að veiða ef þú eykur sóknina. Þetta mun sem sagt hafa neikvæð áhrif á eftirspurn einstaklinga eftir ferðalögum til Íslands í ljósi þeirra verðhækkana sem gjaldið hefur í för með sér á útleigu ökutækja. Það hefur áhrif á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu í heild sinni og verðmætasköpun í landinu. Óhóflegar hækkanir skatta og gjalda sem og nýjar álögur geta dregið úr komu erlendra ferðamanna og innlendri neyslu meðan á dvöl þeirra stendur hér. Þá gagnrýna samtökin einnig í umsögn sinni hækkun vörugjalda á ökutæki og benda á að hækkað verð á ökutækjum muni bitna á ferðaþjónustufyrirtækjum og valda verðhækkunum til viðskiptavina þeirra. Þetta hefur allt afleiðingar, frú forseti. Þetta hefur allt áhrif og afleiðingar.
Athygli vekur að skattar eru einnig hækkaðir á þá sem síst skyldi. Samnýting skattþrepa milli hjóna og sambúðarfólks hefur gagnast fjölmörgum þar sem tekjur hjóna geta verið mjög mismunandi. Að loka fyrir þann möguleika að ónýtt skattprósenta í lægra skattþrepi þess tekjulægri nýtist þeim sem eru með hærri tekjur rímar afar illa við þá staðreynd að ábyrgð hjóna á skattskuldum hvors annars verður áfram við lýði. Ábyrgðin hverfur ekki en hagræðingunni er svipt burt í boði ríkisstjórnarinnar. Enn og aftur, frú forseti, er verið að gera atlögu að hjónafólki og þar með þeirri fjölskyldueiningu sem þjóðfélagið hefur byggt á um langan aldur.
Frú forseti. Fjármagnstekjuskattur á leigutekjur einstaklinga er hækkaður um 50%. Þar er um að ræða þá sem til að mynda eru að leigja út eigin eign eða aukaíbúð í eigin húsi og létta þannig undir með greiðslu áhvílandi lána. Í þessu sambandi er vert að minnast á bréf sem barst þingmönnum, flestum held ég, a.m.k. mér, í dag frá formanni ungra jafnaðarmanna um einmitt þessa skattahækkun. Með leyfi frú forseta, ætla ég að lesa upp úr því bréfi hans. Þar segir:
„Mig langar að benda á stöðu einstaklinga og þá sérstaklega ungs fólks sem leigir út sína eign, t.d. í 1–2 ár, aðeins til að geta haft ráð á því að flytja svo í kjölfarið í eignina. Þarna er verið að aftra ungu fólki og hindra það að þeir einstaklingar sem hafa jafnvel ekki ráð á að flytja í eigið húsnæði geti ekki borgað niður sín lán að hluta til þar sem eina björgin er að leigja út eign til að eiga möguleika á að búa í henni seinna. Þetta er stórkostlegur skaði fyrir þá sem grípa til örþrifaráða að bíða af sér lán með því að borga þau niður af kappi með þessum hætti.“
Frú forseti. Hverju er verið að lýsa þarna? Það er verið að lýsa vandræðum ungs fólks við að eignast íbúð. Mjög margir, eins og segir í þessari orðsendingu, nýta þann möguleika að leigja íbúð út til þess að geta greitt lánið niður til þess á endanum að geta flutt sjálfir í þessa íbúð. Þarna er verið að gera það enn þá erfiðara. Það er verið að hækka skattinn um 50%. Nú mun fólk borga ekki 11% af leigutekjum heldur 16,5%, hækkar um 50%. Er þetta gott fyrir unga fólkið sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið? Nei, það myndi ég ekki halda. Jákvæðir hvatar, frú forseti, eru minnkaðir og hlaðið undir girðingar og helsi í skattkerfinu.
Frú forseti. Ekki er minnst einu orði, takið eftir, á landbúnað í nefndaráliti meiri hlutans nema hvað varðar förgun dýrahræja og er það auðvitað glöggt merki um áhugaleysi stjórnarinnar á matvælaframleiðslu hér innan lands. Landbúnaðurinn býr við það að samningar eru lausir og ekki að finna neinn metnað hjá ríkisstjórninni til að tryggja matvælaframleiðslu og fæðuöryggi með nýjum búvörusamningi. Á meðan mega undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar ásamt íslenskum almenningi þola óhófleg útgjöld ríkisins til ómarkvissra loftslagsaðgerða þar sem ekkert liggur fyrir um hvert féð hefur runnið, hverjir séu viðtakendur þess eða hvaða árangri fjárausturinn hefur skilað í loftslagslegum efnum.
Ég ætla nú að gera stuttlega grein fyrir tillögu 2. minni hluta til niðurskurðar í útgjöldum, bæði í formi beinna tillagna og einnig ábendinga. Þessar tillögur eru í fimm liðum. Ég ætla að byrja á því sem inngangi að þessu að greina frá því að ég tel að þegar menn ætla að ráðast á útgjaldahlið ríkisfjármálanna — sem ég tel vera nauðsynlegt, það er nauðsynlegt að ráðast á útgjaldahlið ríkisfjármála, það verður ekki lengur unað við það að hækka bara skatta — þá þurfa menn fyrst og fremst að horfa á þrjá útgjaldaliði; loftslagsmál, hælisleitendamál og báknið. Þessir þrír útgjaldaliðir, sem er að sjálfsögðu víða að finna í fjárlagafrumvarpinu, og ég sé að hæstv. ráðherra brosir nú bara að þessu, eru þeir útgjaldaliðir sem eru kostnaðarsamastir og þarf að taka á, hæstv. ráðherra.
Annar minni hluti leggur til að gerð verði markviss áætlun um aðhald í ríkisrekstri. Hún felst m.a. en ekki tæmandi í eftirfarandi tillögum að niðurskurði og endurskipulagningu útgjalda á fjárfrekum málefnasviðum. Í fyrsta lagi eru loftslagsmálin. Nokkur orð um það.
Frú forseti. Eðlilegt er auðvitað, eins og ég hef margoft sagt í þessum ræðustól, að gera skýlausa kröfu um að útgjöldum til ákveðinna verkefna fylgi krafa um að þau leiði til fyrirframákveðins árangurs og hann sé mælanlegur. Það er ekki hægt að ausa fé úr ríkissjóði án þess að fá til baka upplýsingar um það hvaða árangri það skili og leggja til fyrir fram hvaða árangri menn ætla að ná. Það er ekki hægt að ausa út eins og til loftslagsmála án þess að gera þessa sjálfsögðu kröfu. Hér er um skattfé að ræða. Þessi árangur sé mælanlegur svo unnt sé að fylgjast með framvindu verkefnanna. Útgjöld til aðgerða í loftslagsmálum hafa numið samkvæmt svari hæstv. ráðherra 144,3 milljörðum, ekki milljónum eins og sumir mismæla sig á, á síðustu átta árum, þ.e. 18 milljörðum á hverju einasta ári síðustu átta árin og gert er ráð fyrir, frú forseti, að þau nemi 28,4 milljörðum árlega næstu fjögur árin. Er tækifæri til að spara? Er tækifæri til að spyrja spurninga? Er tækifæri til að biðja um árangur? Er tækifæri til að fá a.m.k. að sjá árangurinn? Er einhver árangur eða hvað? Hvert renna þessir peningar? Hæstv. ráðherra hefur ekki einu sinni svar við því hvert þessir peningar renna. Jú, það er hægt að nefna eitthvað, hægt að finna eitthvað, það er hægt að finna einhverjar tölur. Ég gerði tilraun til þess, frú forseti, að finna þessar tölur. Að sjálfsögðu fann ég eitthvað en það er langt því frá að ég nái upp í þessar fjárhæðir sem ég nefni hér. Þarna verður að gera skurk og þarna er tækifæri, hæstv. ráðherra. Þarna er tækifæri til að grandskoða þennan útgjaldalið en á meðan engin svör fást og enginn árangur mælist þá verður auðvitað að draga stórlega úr þessum útgjaldalið. Það er auðvitað bara krafa skattgreiðenda þó að ekki væri annað, að við ausum ekki fé nema vita hvað á að gera við það og hvað við erum að kaupa fyrir það og hvaða árangur næst.
Þessir fjármunir hafa eftir því sem best verður séð að hluta til runnið til verkefna þar sem árangursmælingar hafa ekki farið fram eða eru ekki tiltækar. Óforsvaranlegt er að svo virðist vera að ekki sé unnt að svara. Það er ekki unnt að svara því hvert þessir fjármunir hafa runnið eða til hvaða verkefna svo fullnægjandi sé. Menn hafa nefnt ýmis verkefni en það er ekki nándar nærri komið að því að þessu sé svarað að öllu leyti þannig að allir fjármunirnir séu merktir á einhvern ákveðinn stað. Slík meðferð fjármuna er óboðleg og ég vona, frú forseti, að hæstv. ráðherra hljóti að vera mér sammála að því leytinu til að slík meðferð fjármuna sé óboðleg í fjármálum ríkisins þar sem vélað er um skattfé borgaranna og verður að stöðva, a.m.k. meðan beðið er eftir því að öll kurl séu komin til grafar og hver árangurinn sé af ráðstöfuninni.
Frú forseti. Skiptir þá engu hvort heildaryfirbragð verkefnanna sé til vinsælda fallið. Það skiptir engu máli eða jafnvel æskilegt að fara út í það ef ekki er unnt að benda á að árangur hafi náðst. Íslendingar skara fram úr öðrum þjóðum í nýtingu endurnýjanlegrar orku, gera umhverfismálum m.a. þannig hátt undir höfði. 2. minni hluti bendir á að þessi útgjöld megi og þurfi nauðsynlega að endurskoða til sparnaðar.
Varðandi málefni hælisleitenda þá telur Miðflokkurinn að útgjöld til málefna hælisleitenda hafi vaxið langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Ég tel nú, frú forseti, að margir geti verið mér sammála þar. Afleiðingarnar eru víða sýnilegar í auknum rekstrarkostnaði ríkis og sveitarfélaga. Straumur flóttafólks er hlutfallslega margfalt meiri hér á landi en í nágrannaríkjum okkar og hefur átt þátt í að draga úr viðnámsþrótti t.d. löggæslu, heilbrigðis- og menntakerfis. Nauðsynlegt er að draga verulega úr útgjöldum til málaflokksins með því að herða reglur, stytta málsmeðferðartíma og takmarka verulega umfang fjárhagsstuðnings. Miðflokkurinn hefur lagt til að ekki verði tekið á móti hælisleitendum sem hingað leita á eigin vegum næstu fimm árin. Það væri til þess fallið að lækka kostnað við málaflokkinn. Lykilskref er að virkja til fulls að nýju beitingu Dyflinnarreglugerðarinnar sem gerir íslenskum stjórnvöldum kleift að senda mann aftur til öruggs ríkis þar sem óhjákvæmilegt er að viðkomandi hafi haft viðkomu ef hann á annað borð er kominn til Íslands. Taka verður upp landamæraeftirlit með það að markmiði að þeim sem óska eftir hæli hér verði tafarlaust vísað til baka á grundvelli reglugerðarinnar. Jafnframt þarf að gera nauðsynlegar breytingar á verklagi Útlendingastofnunar hvað þetta varðar, með lagabreytingum ef þess þarf. Til að leggja enn frekari þunga á nýtt verklag er nauðsynlegt að stofnuninni yrði tryggð aðstaða í flugstöðinni í Keflavík. Áhersla væri lögð á hraða, skilvirka og skýra stjórnsýslu.
Til viðbótar við hlé á umsóknum er áríðandi að draga þegar í stað verulega úr þjónustu við hælisleitendur. Skal þar litið til allra útgjaldaliða, allt frá aksturs- og túlkaþjónustu til leigugreiðslna, beins fjárhagsstuðnings, uppihalds og hvers konar þjónustu annarrar. Mun þetta í sjálfu sér, frú forseti, draga úr hvata fólks til að leita hingað eða dvelja hér of lengi. Það er auðvitað óboðlegt, frú forseti, að lesa fréttir um það meiri hluti og jafnvel mikill meiri hluti allra þeirra sem sækja um hæli komi hingað á vegum glæpagengja og ferðist um á þeirra vegum. Þetta verður að stöðva, frú forseti. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ríkisstjórnin er að leitast við að stoppa í þessi göt sem á þessu kerfi eru en það þarf að herða róðurinn. Það þarf að lækka þessi útgjöld hraðar heldur en ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. Það þarf að hraða lagabreytingum og herða lög eins og Miðflokkurinn hefur t.d. lagt til, til að herða þetta enn þá frekar.
Frú forseti. Gera má ráð fyrir ört lækkandi kostnaði í málaflokknum ef hætt verður að taka á móti hælisleitendum. Miðað við kostnað í málaflokknum gætu aðgerðir skilað strax á fyrsta ári 3–6 milljörðum í hagræðingu og enn frekar þegar frá líður.
Frú forseti. Þetta voru tillögur sem í var ekki falin sérstök upphæð til breytinga á fjárlögum en í seinni tillögunum þremur er falin upphæð sem við leggjum til að fjárlögin breytist um. Í fyrsta lagi er það samgöngusáttmáli. Framlög til stórra innviðaverkefna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal svokallaðrar borgarlínu, eru há, enda framkvæmdin umfangsmikil og kostnaðarsöm. Miðflokkurinn telur að stjórnvöld hafi misst sjónar á kostnaði annars vegar og mögulegum ábata hins vegar af þeim verkefnum sem nú er unnið að undir hatti Betri samgangna. Kostnaður hefur vaxið gríðarlega án þess að fullnægjandi arðsemis- eða ábatagreining liggi fyrir. Tillaga 2. minni hluta er að stöðva frekari fjárveitingar til borgarlínu og tengdra verkefna og endurskoða samgöngusáttmálann í heild með það að markmiði að forgangsraða nauðsynlegum vegaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni um leið og áhersla er lögð á að ná árangri við að bæta almenningssamgöngur með hagkvæmari og raunhæfari hætti en nú eru áform um. Því leggur 2. minni hluti til að stöðva útgjöld til þessa verkefnis sem nemur 6 milljörðum kr. á árinu 2026.
Í öðru lagi leggjum við til að dregið verði úr framlögum til Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið starfar á fjölmiðlamarkaði þar sem aðrir aðilar bera rekstraráhættu og fjármagna starfsemi sína án ríkisframlaga að mestu leyti. Miðflokkurinn telur að Ríkisútvarpið eigi ekki að vera undanþegið þeirri ábyrgð að auka skilvirkni og forgangsraða eigin verkefnum. 2. minni hluti leggur til að dregið verði úr framlögum til RÚV á næsta ári um 20% og að stofnuninni verði gert að aðlagast breyttum rekstrarskilyrðum í fjölmiðlaumhverfi samtímans. Ég tel, frú forseti, að þessi tillaga um 20% aðhald til Ríkisútvarpsins sé mjög hófleg og vel framkvæmanleg. Samkvæmt framangreindu leggur 2. minni hluti til að lækka útgjöld til Ríkisútvarpsins um 1,36 milljarða á árinu 2026.
Loks gerir 2. minni hluti tillögu um sérstaka aðhaldskröfu á aðalskrifstofu Stjórnarráðsins. Stjórnarráðið hefur á undanförnum árum og áratugum vaxið hvað hraðast ef horft er til útgjalda hins opinbera. Miðflokkurinn telur að þörf sé á kröftugu aðhaldi í Stjórnarráðinu og með því að draga úr endurráðningum um 50% sé unnt að ná 3% niðurskurði á aðalskrifstofum ráðuneyta strax á árinu 2026. 2. minni hluti bendir einnig á að með sama hætti væri víða unnt að ná fram sambærilegum sparnaði í ríkisrekstri. Samkvæmt framangreindu leggur 2. minni hluti til að skera niður fjárveitingar til aðalskrifstofu Stjórnarráðsins um 423 milljónir á árinu 2026.
Frú forseti. Miðflokkurinn telur að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar skorti bæði nauðsynlegt aðhald og skýra forgangsröðun. Með markvissum niðurskurði í málaflokkum þar sem útgjöld hafa aukist hraðast, ásamt kerfisbreytingum sem stuðla að skilvirkni og ábyrgri nýtingu fjármuna, væri unnt að leggja fram hallalaus fjárlög sem styðja við efnahagslegan stöðugleika og vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Þar með er möguleiki að fara fyrr í niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs og þar með minnka vaxtabyrðina og auka þannig tekjur ríkissjóðs til lengri tíma litið. Skilaboð um strangt aðhald munu einnig hraða lækkun vaxta því aðhald í ríkisfjármálum er meginforsenda þess að vextir lækki. Að mati 2. minni hluta er brýnt að stjórnvöld stöðvi viðvarandi útgjaldaaukningu ríkissjóðs og snúi sér að ábyrgri fjármálastjórn þar sem meginmarkmiðin ættu að vera aðhald og stöðugleiki, hallalaus fjárlög, skuldalækkun ríkissjóðs og skilvirkni og árangur í opinberum rekstri.