fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ræðuna. Nú ætla ég ekki að þreyta hann á því að fara yfir þau ítrekuðu svör sem ég hef veitt varðandi þann misskilning sem uppi er um að einhver tengsl séu á milli breytinga á mati eða spám um tekjur af erfðafjárskatti og þeirra breytinga á erfðalöggjöfinni sem hann vék að í máli sínu en vísa til fyrri orða minna.
Mig langaði til að fylgja eftir því sem hann fjallaði um sem eru ábendingar varðandi tækifæri til að draga úr kostnaði hins opinbera. Hv. þingmaður misskildi sennilega það að ég brosti yfir ákveðnum hluta ræðu hans en það var ekki af virðingarleysi, það ég get fullvissað hv. þingmann um, heldur einungis það að þegar báknið er nefnt hér í ræðustóli Alþingis, og að ráðast á báknið, þá er það býsna óljóst; þ.e. hann var með tvær mjög skýrar ábendingar um hvað mætti betur fara í rekstri hins opinbera á þessum fjárlögum og eina síðan til þess að gera mjög óljósa. Mig langar til þess að segja að varðandi bæði loftslagsmálin og útlendingamálin eru það auðvitað markmið þessarar ríkisstjórnar að gera miklum mun betur en gert hefur verið á undanförnum árum. Ég vona að við eigum gott samstarf um það.
Mig langar til að spyrja frekar um sparnaðaraðgerðir sem raunverulega gætu skilað okkur því sem hv. þingmaður nefndi ítrekað í sinni ræðu, sem er að draga úr vexti og umsvifum ríkisins í íslensku samfélagi.