157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:21]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Tillögur til sparnaðar sem gætu raunverulega leitt til lækkunar útgjalda í ríkisrekstri, spyr hæstv. ráðherra. Ég starfaði hjá ríkisstofnunum áratugum saman. Auðvitað er þetta ekki ný uppfinning en það hefur oft verið rætt um að draga verulega saman í endurráðningum í ríkisgeiranum, hjá stofnunum ríkisins, hjá Stjórnarráðinu, í einhverjum hlutföllum. Auðvitað er stundum nauðsynlegt að ráða nýtt fólk þegar einhver hverfur frá eða hættir. En að gera einhvers konar reglu um það, eins og kemur fram í minni tillögu, um 50%, að það yrði ekki ráðið í 50% tilvika. Það er auðvitað eitthvert skot út í loftið en það gæti verið eitthvað nálægt því og fer auðvitað eftir stærð stofnana. Ef stofnun er mjög fámenn er kannski ekki hægt að gera þá kröfu að einn af fimm starfsmönnum hætti. En einhvers konar svona regla gæti leitt til þess að það myndi fljótt — maður sér það þegar maður vinnur hjá stórri stofnun að það er mikil starfsmannavelta. Ef þú dregur aðeins úr nýráðningum og endurráðningum þá nærðu fljótt árangri. Gera þarf kröfu um aga, að sjálfsögðu, kröfu um að menn taki við þessum verkefnum sem hugsanlega verða þá þyngri á þeim sem eftir eru, en í stórri stofnun er kannski hægt að búa við það, a.m.k. um sinn, kannski tvö, þrjú ár. Svona myndi draga örlítið úr starfsmannafjöldanum.