fjárlög 2026.
Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir svarið sem mér finnst allrar athygli vert. Það er hins vegar þannig með margar af þessum hugmyndum sem hér koma fram að við erum kannski ekki opin fyrir þeirri hugmynd að þeim sé beitt alls staðar og án einhvers konar áherslu eða pólitískrar sýnar. Ég vil í þessu samhengi minna á að meðal þeirra ríkisstarfsmanna sem heyra undir það sem kannski mætti kalla báknið — ég leyfi hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni að leiðrétta mig ef hann á við eitthvert allt annað — er auðvitað heilbrigðiskerfið okkar, menntakerfið, löggæslan, Landhelgisgæslan og fleiri stofnanir sem eru raunar hornsteinar í okkar velferðarsamfélagi. Telur hv. þingmaður að slíkum reglum þyrfti þá að beina sérstaklega í einhvern ákveðinn farveg og með hvaða hætti mætti gera það?