fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir ansi ítarlega yfirferð yfir minnihlutaálit 2. minni hluta fjárlaganefndar. Það var margt áhugavert að finna í því. Ég er frekar mikil áhugamanneskja um framsetningu og að við séum öll að vinna með sömu upplýsingar o.s.frv. þannig að ég er með nokkrar spurningar. Mig langar kannski að byrja á því að nefna það sem hv. þingmaður hafði dálítið langt mál um, þ.e. efnahagshorfurnar, að ástandið væri svolítið svart. Það mátti kannski greina að hann væri að gera lítið úr sleggjunni og að vextir og verðbólga væru ekki að ganga nógu hratt niður. Fyrsta spurningin er því hvort hann telji ekki að það að verðbólgan sé komin niður í 3,7% muni hjálpa fyrirtækjum og heimilum í þessu landi. Ég er alveg sannfærð um að það er það besta sem við getum gert fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann deili ekki þeirri skoðun með mér og að þetta sé nú kannski ekki eins svart og hann lýsti hér áðan.
Svo er hv. þingmaður með spurningu beint til meiri hlutans varðandi stöðugleikaregluna. Nú erum við í fyrsta skipti að vinna með hana og fyrir mig sem nefndarmann í fjárlaganefnd þá finnst mér hún vera að gera sitt gagn af því að ég tel að hún haldi svo sannarlega í útgjaldavöxt og mér finnst hún vera að virka. Hv. þingmaður talar um að stöðugleikareglan sé oft kátbrosleg og mig langar að spyrja: Telur þingmaðurinn að stöðugleikareglan sé ekki að virka? Og ef hún er ekki að virka, hvaða aðrar reglur gæti hann séð fyrir sér sem gætu gengið þegar við viljum reyna að halda aftur af útgjaldavexti?