157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:29]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar andsvar og það er virkilega gaman að taka þessa umræðu. Ég ætla að byrja á stöðugleikareglunni. Ég hef verið að reyna að skilja hana, auðvitað skil ég hana en ég er að reyna að skilja hver þessi nýja uppfinning í henni er. Í hverju felst þessi nýja uppfinning? Er þetta eitthvað nýtt sem ég er ekki að sjá, eitthvað sem ég skil ekki? Ég er nú búinn að vera það lengi í þessum rekstrargeira hins opinbera að ég held að ég átti mig alveg á þessu. Þetta er engin galdraformúla, hv. þingmaður. Þetta er raunverulega bara eitthvert markmið sem menn setja sér. En meðan þið eruð að berjast og engjast í því að reyna að halda ykkur innan stöðugleikareglunnar þá fæ ég mér bara popp og kók, það er bara þannig. Ég vona að ykkur gangi vel en ég er ansi hræddur um að við séum á bjargbrúninni í reglunni ykkar. Þetta er ekki mín regla, mér er nokk sama hvort þið farið yfir hana eða ekki, ég vil auðvitað bara að ríkisfjármálin séu í lagi, burt séð frá öllum reglum. Ég vil að útgjöldum sé haldið niðri, að við skilum hallalausum fjárlögum, skerum ærlega niður á þeim málefnasviðum sem ég hef sjálfur reynt að benda á og í sumum tilvikum lagt fram tillögu um. Jú, að sjálfsögðu hefur það áhrif ef þú ætlar þér ekki að fara yfir ákveðið mark í útgjöldum, auðvitað hefur það áhrif að reyna að halda sér innan þess, að sjálfsögðu. Ég hef fulla trú á því að það sé gott en á meðan fylgist ég bara með, eins og ég segi, og fæ mér kannski eitthvað á meðan, popp og kók. Hv. þingmaður, ég held áfram í seinna svari mínu.