fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég er með svo margar spurningar. Mér finnst þessi framsetning á því sem þingmaðurinn kallaði hér í löngu máli skattahækkanir ekki trúverðug þegar hann talar um hækkun á erfðafjárskatti. Ef hann hefur lesið minnisblaðið, sem ég veit að hann gerði, sem kom frá fjármálaráðuneytinu 29. nóvember, þar sem farið er ítarlega yfir hvernig endurmatið er reiknað, þá er eignastaða þjóðarbúsins og landsins bara að aukast og þess vegna hækkar erfðafjárstofninn. Hann er 10% og við erum ekki að gera neinar breytingar á því. Þess vegna finnst mér það ódýrt að kalla þetta einhverjar sérstakar skattahækkanir og ég geri athugasemdir við þessa framsetningu.
Ég geri líka athugasemdir við þá framsetningu að veiðigjöld séu tvöfölduð og ég vil bara að hann segi okkur hér hvaða tölur hann er að miða við þar af því. Veiðigjöld hafa ekki verið tvöfölduð og ég bið hann um að koma með þær tölur sem hann hefur til hliðsjónar í því. Ég geri líka athugasemd við að kalla jöfnunargjald raforku sérstaka skattahækkun. Eins og þingmaðurinn veit er þetta inn og út aðgerð. Við innheimtum jöfnunargjald raforku af veitufyrirtækjunum sem fer svo í niðurgreiðslu til fólks og fyrirtækja í dreifbýli. Það er ekki skattahækkun og ég bara segi nei við slíkri framsetningu, hv. þingmaður. Það er meira sem ég hefði viljað fara yfir hér en er að renna út á tíma. Þingmaður sem stendur honum nærri benti mér á grein sem birtist í BBC á dögunum, þar kemur fram að Bretland er að fara að taka upp kílómetragjald. Ég get sent honum þá grein. Ég fékk hana frá öðrum þingmanni Miðflokksins af því að við erum ekki alveg ein að hugsa á þessum nótum. Það er margt annað. Mig langaði líka að spyrja hann um landbúnaðinn, þingmaðurinn saknaði þess að það væri ekkert um landbúnað í meirihlutaálitinu. Hvað vill þingmaðurinn sjá að við gerum í landbúnaðarmálum sem hann telur að eigi heima í meirihlutaáliti fjárlaganefndar? Ég bara spyr: Hvað á það að vera?