157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:34]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég átti eftir að svara varðandi efnahagshorfurnar. Hún taldi að ég væri frekar svartsýnn á þær og minntist á að verðbólgan væri komin í 3,7%. Það er alveg rétt. Varðandi efnahagshorfurnar, þá fór ég yfir fjöldann allan af ábendingum og merkjum um að þær gætu hugsanlega verið verri en menn gera ráð fyrir. Það eru ýmsar sveiflur í útflutningsgreinum eins og ég nefndi. Ég veit t.d. að í sjávarútvegi er loðnukvótinn algerlega óviss og það er minnkandi kolmunni og makríll. Þorskkvótinn er að minnka, það er kominn tollur á verksmiðju í Hvalfirði, það er búið að leggja niður vinnu á Bakka, flugfélagið Play hefur lagt upp laupana o.s.frv. Þetta vita allir, þannig að ég er bara að tala um að horfurnar séu ekki góðar.

Ef talað er um skattahækkanir, frú forseti, sem hv. þingmaður spurði einnig um — henni fannst ég gera of mikið úr skattahækkunum. Ég vil bara segja það að þeir sem borga þessa skatta verða varir við það, þeir munu verða varir við það. Og að jöfnunargjald sé einhvers konar inn og út, þetta er talin hækkun í frumvarpinu, þetta er talin hækkun. Og eitthvert bókhald, það eru aðrir sem sinna bókhaldi. Ég er að fara yfir stóru línurnar. Þetta er talin hækkun þar hvernig sem menn reikna þetta. Varðandi erfðafjárskattinn, sem þingmaðurinn kom örlítið inn á, vil ég bara vitna til orða hæstv. ráðherra hér fyrr í dag í tengslum við hækkun á erfðafjárskatti í bandormi, þá sagði hann að hann hefði áhyggjur af bændum. Það er því ekki úr lausu lofti gripið að þetta frumvarp gæti valdið miklum erfiðleikum með bújarðaskipti í bændastétt. (Forseti hringir.) Það er ekki úr lausu lofti gripið og hæstv. ráðherra hefur játað að hafa áhyggjur af því.