157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir hans ágætu ræðu. Mig langar að spyrja um sóknaráætlanir og þær hugmyndir sem meiri hlutinn setur fram núna. Mat nefndin þær umsagnarbeiðnir sem komu til nefndarinnar miðað við þá upphæð sem var bætt við inn í sóknaráætlun upp á 280 milljónir, þannig að í heild verði þetta 400 milljónir, miðað við það sem var sótt um núna? Þetta dreifist náttúrlega vítt og breitt um landið. Ég er ekki alveg með tölurnar, hvað landshlutasamtökin eru mörg á landsbyggðinni, hvernig þetta dreifist, ég held þau séu sex. Þetta gætu verið 40–50 milljónir á hverja og eina. Hvað hefur verið veitt á síðustu árum? Þetta er kannski fyrri spurningin sem mig langaði að spyrja vegna þess að ég held að þetta hefði átt að vera svolítill aðdragandi að þessari vinnu, til að fá viðbrögðin heima í landshlutunum. Mögulega gæti þetta orðið bitbein milli aðila. Það hefur ekkert komið fram, ekkert útfært, hvernig verður staðið að þessu. Hvenær verður þetta komið út í feltið, fjárveitingarnar, og hvernig meiri hlutinn sér það fyrir sér?

Hitt atriðið sem mig langaði að koma inn á: Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar er komið inn á hagvöxt á mann og þróun síðasta áratugar, sem er 1,2% sem er með því besta sem gerist á Norðurlöndunum. Ef það er best á Norðurlöndunum þá er það með því besta í allri Evrópu. Danmörk er tekin sem dæmi um land þar sem framleiðnivöxtur hefur verið meira en 1,9% á mann. Það er Novo Nordisk sem á það allt saman, sem dæmi, en það er núna heldur að gefa eftir. Stóra spurningin með alla umræðu sem er búin að vera í pólitíkinni síðasta ár um þennan framleiðnivöxt á mann, hagvöxtinn, og gefa það í skyn að hann hafi verið eitthvað dapur, er það ekki það sem meiri hlutinn (Forseti hringir.) fjárlaganefndar er að sýna okkur fram á að svo er ekki, eins og hefur verið bent á hér á síðustu árum með ágætum hætti?