fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Þeir sem heyrðu upphaf ræðu minnar gætu haldið að þetta væri plöntuð spurning, plantað andsvar, því að ég var einmitt að lýsa þessari miklu umbreytingu í hagkerfinu síðustu 10–15 árin, hvernig ferðaþjónustan fór frá því að vera vertíðargrein yfir sumarið í að vera heilsársgrein, m.a. með því að byggja upp áfangastaðinn Reykjavík sem var hluti af miklu samspili borgarinnar, ríkisins og greinarinnar. Hugverka- og hugvitsgreinarnar, ásamt skapandi greinunum, eru samt stóra breytingin, það er algerlega hárrétt. Ég var setja í samhengi hér áðan að það hefði komið mörgum á óvart að forsendur fjárlaga breyttust ekki meira vegna nýafstaðinna viðburða af ýmsu tagi í atvinnulífinu. Það er m.a. vegna þess að þessi aukna fjölbreytni er til staðar. Það er alveg rétt að henni hefur fylgt framlegð (Forseti hringir.) og framleiðni, aukning á ýmsum sviðum og gert samfélagið og efnahagslífið sterkara.