fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þetta andsvar. Ég talaði um skynsamlegt aðhald, það er töluvert aðhald bæði í fjárlögum og fjármálaáætlun miðað við vaxandi þarfir í samfélaginu. Það sem stöðugleikareglan felur í sér, hún er nokkurs konar útgjaldaregla, er að hún samþykkir 2% raunaukningu útgjalda. Þetta bara í sjálfu sér býr til aðhald sem ég held að sé skynsamlegt við núverandi aðstæður. Sumir skattar hækka, þ.e. veiðigjöldin voru hækkuð og það var nú beinlínis kosningaloforð Samfylkingarinnar að það væri eðlilegt að útgerðin myndi borga eðlilegra afgjald af auðlindinni. Það eru aðrir skattar sem lækka. Það er verið að lækka skatta á fyrirtæki um 1%, skattar á lögaðila lækka um 1% um áramót, því að sá tímabundni skattur sem síðasta ríkisstjórn setti rennur út. Svo er verið að gera aðrar breytingar sem skynsamlegar þykja. Ef þetta er dregið saman og horft á þetta þá voru þær skattbreytingar sem eru hluti af þessu fjárlagafrumvarpi mjög hóflegar.
Mér finnst stundum umræðan bara vera fasti óháð því hvað er verið að gera í pólitíkinni. Ég get alveg ímyndað mér hvernig ræður þingmanna stjórnarandstöðunnar væru hér ef við værum að hækka skatta á öll fyrirtækin í landinu um 1% eins og í fyrra.