fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér finnst hv. þingmaður vera ágætlega hreinskilinn. Hann lítur svo á að tímabundinn skattur, sem var til eins árs, ef menn framlengja hann ekki þá sé það skattalækkun. Það er svona ákveðið viðhorf, hann gefur sér það að tímabundinn skattur sé kominn til að vera en ef menn framlengja ekki tímabundna skatta þá sé það skattalækkun. Stöðugleikareglan, útgjaldareglan, heldur ekki aftur af útgjöldum ef þú hækkar bara skatta á móti. Þá getur maður haldið áfram. Það er það sem er gert og hv. þingmaður kallar þetta hóflegar skattahækkanir. En þetta eru skattahækkanir. Við þurfum alla vega ekki að ræða það neitt frekar. Við vitum að það var sagt fyrir kosningar að það ætti ekki að hækka skatta á almenning. (Forseti hringir.) Mér finnst bara gott að fá þessa hreinskilni enda liggur þetta fyrir og það þarf ekkert að ræða þetta frekar.