157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:20]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Já, það var talað um að auka ekki álögur á venjulegt vinnandi fólk og það er nákvæmlega það sem er verið að gera. Þó að maður hækki veiðigjöld þá er það ekki skattahækkun á venjulegt vinnandi fólk. Það eru auðlindagjöld sem var löngu tímabært að hækka og mátti hækka. Af því að hér er talað eins og það að tekjuskattur lögaðila lækki um áramót sé ekki skattalækkun, þá er það skattalækkun um 1%. Nákvæmlega eins og hér hafa verið haldnar ófáar ræður á þessu hausti þar sem er verið að fjalla um tímabundin fjárframlög fjárlaganefndar til mjög góðrar starfsemi, t.d. Ljóssins og fleiri aðila — ég hef ekki betur heyrt en viðkomandi þingmaður og aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi talað um það sem niðurskurð (Forseti hringir.) að framlengja það ekki. Þannig að þessi orðanotkun er greinilega líka um (Gripið fram í.)tímabundnar fjárveitingar. (Forseti hringir.) Ég er mjög ánægður með að við séum núna að stórhækka framlög (Forseti hringir.) til endurhæfingarúrræða, þar á meðal Ljóssins.