157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:22]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Við höfum ekki alveg sömu sýn á hagsmuni landsbyggðarinnar, eins og komið hefur í ljós í umræðunni í dag. Hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta hér áðan og ég ætlaði svo sem ekkert að fara í þann gír en ég sé mig einhvern veginn knúinn til þess. Efling landsbyggðarinnar, sjúkraflutningar — það er bara eðlileg krafa, sérstaklega þegar búið er að byggja upp þessi hátæknisjúkrahús meira og minna á Akureyri og í Reykjavík. Það er þá bara eðlilegt að sjúkraflutningar aukist og ég fagna því að sjálfsögðu. Uppbygging framhaldsskólanna — þar voru komnir 5 milljarðar inn. Þeir áttu ekki að fara í það verkefni, það var bara sagt hér af hæstv. ráðherra. En sem betur fer var það nú sett inn aftur. Almenningssamgöngur — það er verið að skera niður almenningssamgöngur á landsbyggðinni á meðan verið er að efla þær hér á höfuðborgarsvæðinu. Við getum farið í endalausar hártoganir um þetta, ég og hv. þingmaður, en ég held að niðurstaðan verði sú að við verðum aldrei sammála.

Mig langaði hins vegar að spyrja hv. þingmann: Hér eru þessir 24 milljarðar í varnartengd verkefni, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á hér áðan. Fyrir okkur sem erum í minni hlutanum, og höfum ekki sömu gögn og sömu yfirsýn yfir fjárlögin og fulltrúar meiri hlutans, þá er það rosalega vont að hafa þetta ekki inni, vera ekki með þetta sundurliðað. Þetta eru verkefni sem eru undanþegin stöðugleikareglunni og það er mjög erfitt fyrir okkur, þegar við erum með 24 milljarða inni í áætlun sem við vitum ekki hvort telja eigi með í stöðugleikareglunni eða ekki, að reyna að reikna okkur (Forseti hringir.) niður á þá niðurstöðu hvort hún haldi eða ekki. (Forseti hringir.) Ég spyr hvort hv. þingmaður sé ekki (Forseti hringir.) tilbúinn að koma með okkur í þá vegferð að reyna að fá þetta sundurliðað þannig að við getum betur áttað okkur á því hvað er inni og hvað ekki þegar kemur að stöðugleikareglunni.

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar við hv. þingmenn að virða ræðutíma.)